Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 72
V í K I N G U R
mál í mínum dálki en bendi á að
forsjálir rnenn hafa verið til í Banda-
ríkjunum þar sem einhver mesta
fjöldaframleiðsla á skipum átti sér
stað á tímum seinni heimsstyrjaldar-
innar. Liberty-skipin voru okkur
íslendingum vel kunn á stríðsárun-
um og árunum þar á eftir, jafnvel
þótt við eignuðumst aldrei slíkt skip.
Tvö skip af þessari gerð hafa varð-
veist í Bandaríkjunum og jrað meira
að segja í sinni upprunalegu rnynd.
Pessi skip heita Jeremiah O’Brien,
sem liggur í San Francisco, og John
W. Brown sem liggur í Baltimore.
Báðum þessumskipum hefur verið
komið í sitt upprunaléga horf af
sjálfboðaliðum og er áætlað að um
90.000 klukkustundir hafi farið í
vinnuna við John W. Brown. Skipin
eru í siglingahæfu ásigkomulagi og
það eru sjálfboðaliðar sem sigla
þeim. Farið er með skipaáhugamenn
og aðra túrhesta í siglingar. Þeir eru
margir sem fá gamlan fiðring í fætur
við að koma um borð og sjá sjó-
mennsku stríðsáranna ljóslifandi
fyrir sér. Það sem erfiðast var að fá
til skipanna við uppgerð á jreim var
vopnabúnaðurinn. Þau vopn sem
[tessi skip voru búin voru löngu
orðin úrelt (ekki eru margar þjóðir
sem þiggja afdankað vopnaminjasafn
til afnota þegar henda á slíkum hlut-
um) og hvergi lengur í notkun. Þó
tókst jiað að lokum. Það væru eflaust
margir íslendingar tilbúnir að leggja
út í mikið sjálfboðaliðsstarf, áskotn-
aðist okkur einhver okkar gömlu
nýsköpunartogara í dag.
ENN UM GAMLINGJANA
Það hefur löngum verið ógnun
sem fær hjólin til að snúast þegar allt
er komið í strand. í síðasta Víkingi,
fjallaði ég um íarjiegaskipið United
States og brotajárnsógnunina sem
yfir því skipi hvíidi. Nú eru hjólin
farin að snúast til betri vegar fyrir
þennan aldna risa jiví Jaað var selt á
opinberu uppboði fyrirtæki sem ber
nafnið Marmara Marine og er í eigu
bandarískrar ferðaskrifstofu og
tyrknesks útgerðarmanns. Hreppti
það skipið á um 2,6 milljónir dollara
og er því ljóst að nú stefnir skipið út
úr höfninni í Newport áður en langt
um líður. Talið er að það kosti 160
milljónir dala að koma skipinu í
United States á blómaskeiði sínu.
FRÁBÆR TÆKI FRÁ NAVCO
WP 5000 sjálfstýring. Mótor og reim við stýr-
ið. auðveld í uppsetningu og notkun.
Hægt að tengja við Loran eða GPS.
SAMAX
Lækjarhvammi 8 ■ 220 Hafnarfirði • S 91-652830 • Fax 91-652803
RT 6500S örbylgjutalstöð. Vönuð stöð á
góðu verði, 55 rásir, leitari með minni.
PH 8000 vökvasjálfstýring fyrir þá vandlátu.
Sendum í póstkröfu.
Pöntunarsími 91-652830
72