Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 46
V f K I N G U R
vom nánast um 30 af hundraði þeirra
sem vom á staðnum. Það vakti athygli
bæjarbúa að Bretar skutu aldrei á þýsku
flugvélarnar sem komu yfir fjörðinn,
enda þótt þeir hefðu sett upp nokkrar
loftvarnabyssur.
Þegar flugvélanna varð vart þustu
bresku hermennirnir út úr skálunum og
skýldu sér við íbúðarhús bæjarmanna.
Það var eins og þeir væm í felum. Það var
ekki fyrr en Bandaríkjamenn komu og
tóku við hinn 5. september 1942 að þetta
breyttist. Þeir kornu með stórar loftv-
arnabyssur og gnægð skotfæra og yrði
Húnanna (Þjóðverjanna) vart logaði loft-
ið af skothrið.
Bandaríkjamenn settu fljótlega kaf-
bátagirðingu í fjörðinn og sömuleiðis
lögðu þeir tundurduflagirðingar. Sum
duflanna vom botnlæg og tengd tundur-
þráðum í landi. Þannig gat herinn
sprengt þau frá sérstakri stjórnstöð, sem
SKIPA- OG BÁTAVÉLAR
9-1100 hestðfl
YANMAR véiarnar eru ein-
staklega léttar og fyrir-
ferðarlitlar og þekktar fyrir
vandaða hönnun og mikla
endingu.
Eigum á lager og væntan-
legar:
Gerð 4LH: 110,140 og
170 hö.
Gerð 4JH: 41,52,63 og 74 hö.
Hagstætt verð.
Sala- Ráðgjöf - Þjónusta
M MERK M IHII
Skútuvogi 12A ■ ® 82530
var hjá bænum Þórarinsstöðum sunnan
(jarðar. Þaðan lágu duflalínurnar norður
yfir fjörðinn. Frá Hánefsstaðaeyrum lá
flotduflagirðing norður yfir og á henni
var hlið. Varðskip flotans gætti hliðsins og
urðu allir sem leið áttu um fjörðinn að
hafa samband við það. Þá var enn dufla-
girðing utar í firðinum.
Seyðisfjörðurinn var á þessum ámm
sannkölluð herskipahöfn. Þangað komu
herskip sem voru í ormstunni um Ad-
antshafið. Þeirra á meðal Hood, sem
þýska herskipið Bismark sökkd síðar fyrir
norðvestan Island. Þeir Einar og Hörður
Vilhjálmssynir frá Hrólfi reru oft til fiskj-
ar og vom fengsælir því mikill fiskur var í
Seyðisfirði á þessum tíma. Áhafnir hersk-
ipanna sem lágu úti á firðinum kölluðu
oft og báðu þá að selja fisk. Þeir fóru þá
helst að stóm herskipunum, King Geor-
ge V, Hood og fleiri stórskipum. Þarna
fóm fram vömskiptí. Fyrir fiskinn fengu
þeir ýmislegt sem var fáséð á skömmtun-
artíma stríðsáranna, ávextí, niðursuðu-
vörur ofl.
Risastór flugvélamóðurskip vom
þarna tíðir gestir og orrustuskip, beitiskip
og tundurspillar komu og fóru. En Þjóð-
veijar komu líka í heimsókn af hafi.
Þýskur kafbátur heimsækir
Seyðisfjörð
Það var eitt sinni um nótt — klukkan að
ganga tvö — að fólk kom af dansleik og
var á leið út með firðinum. Það tók þá
eftir stómm kafbáti sem sigldi inn fjörð-
inn með suðurströndinni, alla leið inn að
Ölfueyri þar sem kafbátanetið var. Hann
sigldi svo út á miðjan fjörðinn og lagðist
við varðskip flotans sem lónaði þar á
lognkyrmm sjónum.
Einar Viljálmsson, 14 ára sonur lijón-
anna á bænum Hrólfi var vakandi og fór
ásamt fleira heimilisfólki út að horfa á.
Varðskipsmenn virtust ekki verða kaf-
bátsins varir og engin hreyfmg síist þar
um borð.
Hjálmar sýslumaður Vilhjálmsson var
látinn vita af kafbátnum og hann hafði
samstundis samband við herstöðina á
Vestdalseyri. Þar vom m.a. miklar fall-
byssur og tveir stórir ljóskastarar sem sí-
fellt var beint út fjörðinn. Á Vestdalseyri
morsuðu menn með ljóskösturunum og
tókst um síðir að gera skipsmönnum á
varðskipinu ljóst hvaða gesti þeir hefðu
fengið í heimsókn.
Fjörðurinn er mjór og þessa nótt var
stilla og hljóðbært. f varðskipinu varð
uppi fótur og fit. Varðskipsmenn mönn-
uðu fallbyssu sem var á palli fyrir framan
yfirbygginguna og beindu henni að kaf-
bátnum, en hann var svo nærri að ógjör-
legt var að miða svo neðarlega. Kafbátur-
inn seig í kaf og hvarf. Varðskipið var lítill
togari og hafði ekki djúpsprengjur.
Herskip sem lá inni á Seyðisfjarðarhöfn
var sent á staðinn en það kom fyrst eftir
um það bil tvær stundir. Þeir fóru mikinn
út fjörðinn og létu djúpsprengjum rigna
á bæði borð.
Daginn eftir barst frétt um að brak
hefði rekið við Brimnes og einnig að þar
hefði sést olíubrák. Allt benti til þess að
kafbátnum hefði verið grandað. Þennan
dag var Mb. Gulltoppur, bátur Þórarins
Daníelssonar, að veiðum. Bátsveljar
höfðu lagt línuna út af Skálanesbjargi og
voru að draga. Þá kemur allt í einu kaf-
bátur úr djúpinu og siglir út með bjarg-
inu. Kafbátsmenn komu upp og röðuðu
sér á þilfar bátsins og veifuðu til skipveija
á Gulltoppi á meðan kafbáturinn sigldi
hjá á hægri ferð.
Enginn vafi var talinn á að þarna hefði
verið sá hinn sami sem heimsótti Seyðis-
fjörð og varðskip bandamanna nóttina
áður. Augljóslega hafði þessi kafbátur
verið kominn inn fyrir tundurduflabeltin
í firðinum, bæði þau sem hægt var að
sprengja úr landi og takkadufl sem einn-
ig voru þar.
Síðar á stríðsárunum kviknaði í stjórn-
stöðinni og hún brann til grunna. Nú var
illt í efni, öll stjórntæki til sprenginga
duflanna öskubrúga ein en brunnir
Þegar flugvélanna varð vart þustu bresku
hermennirnir út úr skálunum og skýldu sér
við íbúðarhús bæjarmanna. Það var eins
og þeir væru í felum.
46