Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 50
V I K I N G U R Norskur vélbátur, sem var í þjónustu flotans á Seyðisfirði, kont brátt á vettvang og tók mannskapinn, alls 48 manns, um borð. Á meðan áhöfn E1 Grillo var flutt í land horfðu menn á afturenda skipsins sem reis hátt úr sjó. El Grillo sekkur Kl. 14:00 sama dag var afturendi skips- ins enn á floti. Skipstjóri fór þá um borð ásamt yfirvélstjóra, yfirstýrimanni, fjór- um hásetum og tveim skodiðum. Lítið var hægt að aðhafast enda vildi skipstjóri ekki hafa langa viðdvöl þar sem afturendi skipsins gatsokkið skyndilega. I’eim tókst þó að bjarga tveim Oerlikon loftvarna- byssum og hásetum að ná dóti sínu, en íbúðir þeirra afturá voru enn þurrar. Eft- ir þetta fóru menn í land og skipstjóri ásamt áhöfn héldu stuttu síðar af stað til Reykjavíkur. Eftir á Seyðisfirði urðu yfir- stýrimaður og yfirvélstjóri. Um kl. 19:30 sama dag sökk afturendi E1 Grillo sem stóð nú kjölrétt í Seyðis- fjarðarhöfn á 40-50 metra dýpi. Þetta þóttu mikil tíðindi. Á þessum ár- um var útvarpað frá Berlín á íslensku stutta stund á hverjum degi. Hinn 10. febrúar sagði þulurinn í þessari frétta- sendingu að olíuskipinu E1 Grillo hefði verið sökkt. Hann lét þess einnig getið að þerman dag hefði verið bjart yfir Islandi. Einar Vilhjálmsson, sem var á gangi heim að Hrólfi þegar sprengjunum var kastað að E1 Grillo, fór sama dag ásamt Herði bróður sínum á skekktunni eftir firðinum. Á sjónum var mikið brak úr olíuskipinu og hlutir sent höfðu losnað. Tunnur með smurolíu rak um allan sjó, tréfötur og kassar með slökkvitækjum voru meðal þess sem bræðurnir náðu. Þeir náðu þannig í 24 tunnur af smurolíu og eina tunnu fulla af bensíni. Þeir komu böndum á tunnumar og reru með þær að landi þar sem þeim var síðan velt upp í fjöruna. Yfirvöldum var tilkynnt um rekann, en þau skilaboð bárust frá hernum að það sem lent hefði í sjó hirtu þeir ekki unt og mættu björgunarmenn halda sínu góssi. Olía og bensín var svo selt útgerðar- mönnum og bflstjóra, sent þóui mikill fengur að bensíntunnunni, ekki síst vegna strangrar skömmtunar sem þá var í landinu. Viku eftir þessa atburði kom enskt björgunarskip til Seyðisfjarðar. Sam- kvæmt skýrslu skipstjóra E1 Grillo fundu björgunarmenn út að skipið lægi á 25 faðnta dýpi. Foringi þeirra ákvað þá að ekkert yrði aðhafst þar sem þeir höfðu fyrirmæli frá flotastjórninni um að engin djúpköfun eða björgun af miklu dýpi yrði reynd. Næstu vikur og ntánuði ntengaði olía úr hinu sokkna skipi fjörur um allan Seyðisfjörð. Mengunin barst víðar og sem dæmi má nefna að æðarvarp í Loðmun- darfirði spilltist vegna þess. Olían rann viðstöðulaust úr skipinu og stundum varð slíkur olíumóður á fjörum að hægt var að ausa upp í tunnur og nýta til upp- hitunar ásamt öðru eldsneyti. Seyðfirðingum þótti illt af hafa þetta rnikla skip ábotni hafnarinnar. Bæði staf- aði af því mengun og sjómenn sem þar leituðu hafnar urðu oft fyrir skaða þegar akkeri festust í E1 Grillo. Þannig töpuðust verðmæt legufæri. Bæjarbúar vonuðust til þess að skipið yrði fjarlægt. Fornrleg krafa um það kom fram árið 1947. Henni var ekki sinnt. Ári síðar kröfðust Seyð- firðingar þess enn að skipið yrði fjarlægt og kröfðust skaðabóta. Bretar, sem áttu skipið, voru ófúsir til aðgerða og enn tregari til að borga. Þeir buðust á hinn bóginn til að afsala sér skipinu og þeirri olíu sem í því væri. Eftir 1950 varð mikil eftirspurn eftir olíuflutningaskipum. Þar sem yfirvöld höfðu sýnt E1 Grillo lítinn áhuga ákvað Olíufélagið hf. og Samband ísl. samvinnufélaga að athuga björgun eða að minnsta kosti að ná úr því olíu. Eftir nýjar athuganir á skipinu og botni fjarðarins fóru þeir Vilhjálmur Árnason lögmaður og Benedikt Gröndal verk- færðingur, forstjóri Vélsmiðjunnar Hamars, til Englands og ræddu við sér- fræðinga í björgun skipa. Eftir þessa ferð var ákveðið að dæla olíu úr skipinu. Grímur Esteroy, færeyskur kafari sem starfaði hér á landi, fór alls 81 köfun að E1 Grillo. Mönnum frá Vélsmiðjunni Hantri tókst að ná 4500 smálestum af olíu 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.