Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1992, Blaðsíða 36
VINNINGARNIR
Sólveig rétti Guðrúnu Gísladóttur, skrifstofustjóra Víkingsins, mið-
ann og Guðrún aðgætti hvort Páll væri skuldlaus. Páll skipstjóri á
Stakfellinu reyndist vera fullgildur þátttakandi í útdrættinum og
þar með orðinn eigandi að utanlandsferð.
Næst dró Sólveig út nafn áskrifanda sem hafði ekki tekið mark á
fullyrðingu okkar þess efnis að:
Það borgar sig að borga
I þriðju tilraun kom upp nafnið:
Ingi Þór Jóhannesson
Tjarnargötu 22
Keflavík
Vi
IKINGUR
Fyrst var varpað hlutkesti um hvorn skyldi draga út á undan og upp
kom ferðavinningurinn með Santvinnuferðum —Landsýn. Sólveig
Stefánsdótdr heitir unga stúlkan sem dró vinningana úr „potti“
nteð nöfnum allra áskrifenda. f fyrstu atrennu kom upp miði með
nafninu:
Páll Halldórsson
Fjarðarvegi 29
Þórshöfn
Ingi er búinn að koma til okkar og vitja
vinningsins, sent er ferð fyrir tvo og bíl á
vegum Norrænu ferðaskrifstofunnar
með M/F Norröna til Þórshafnar í Færeyj-
um. Það var sérstaklega ánægjulegt að
þessi roskni sjóntaður skyldi hreppa vinn-
ing hjá okkur því að hann, sem nú er 76
ára gamall, sótti sjó frá fimmtán ára aldri
og þar til fyrir íjórum árum að hann fór í
land, eða í 57 ár. Hann lét þó ekki þar við
sitja; síðan hann kont í land hefur hann
beitt línu og fengist við sitt hvað annað í
þágu sjómennskunnar. í sumar ætlar
hann að drífa sig til Færeyja, ásantt konu
sinni, Sigríði Jóhannesdóttur, og njóta
þar nokkurra daga.
Sjómannablaðið Víkingur, Norræna
ferðaskrifstofan og Samvinnuferðir-
Landsýn óska vinningshöfunum til ham-
ingju og góðrar ferðar.
36