Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Blaðsíða 5
Síldveiðisamningur
A síðastliðnum vetri hafa verið haldnir margir fundir um veiðar
ur norsk-íslenska síldarstofninum. Samtök útvegsmanna og sjó-
manna gættu þess vandlega að fylgjast með sendimönnum ríkisins
eftir alla þessa fundi, bæði í Moskvu, London, Osló og Færeyjum.
Þetta var gert í þeirri góðu trú að hagsmunir íslenskra útgerðar- og
sjómanna færu saman við þjóðarhagsmuni. Ekki var annað að sjá og
heyra á þessum fúndum öllum en að þetta væri skoðun allra aðila í
sendinefnd íslands. Við fórum sem sagt um allt til þess að standa á
þeirri kröfu að veiðar okkar yrðu eigi minni en 244 þúsund tonn af
síld nema því aðeins að allir málsaðilar féllust á að draga jafnt úr
sínum veiðum. Á grundvelli þessara sjónarmiða var því lýst yfir að
þar sem Norðmenn og Rússar vildu ekki minnka sinn hlut væru
það þeir sem stæðu í vegi fyrir að hægt væri að ná sáttum um hæfi-
lega heildarveiði. Þorsteinn Pálsson og Halldór Ásgrímsson ásökuði
báðir Norðmenn um óbilgirni þegar slitnaði upp úr og í framhaldi
af því var gefin út sú heildarveiði sem ísland og Færeyjar myndu
leyfa eða alls 330 þúsund tonn. Island fengi 244 þúsund tonn og
Færeyjar 86 þúsund tonn. Sjávarútvegsráðuneytið gaf út reglugerð
um það magn til handa íslenskum skipum. Við töldum að þar með
væri komin ákvörðun fyrir þetta ár og við myndum styrkja samn-
ingsstöðu okkar til framtíðar með því að veiða það aflamagn og
vonuðumst til að í ljósi hlýrri sjávar við Island kæmi síldin nú inn í
okkar lögsögu.
Þá gerist það að ráðherrar fara á leynifúnd með Norðmönnum í
London og gera leynisamning um síldina. Þá þurfti ekki lengur að
vera með hagsmunaaðila í samstarfi og virtist létt verk að víkja frá
þeim hagsmunum að allir gæfú eftir af sínum hlut til þess að ná
samningi. Island, eitt og sér, gaf þar eftir 54 þúsund tonn á móti 25
þúsund tonna eftirgjöf Norðmanna. Til hvers höfðum við enda-
senst um allar jarðir með 244 þúsund tonn og jafna eftirgjöf ef ná
ætti samningum, ef þetta var það sem ráðherrar töldu góðan samn-
ing? Samningur um síldina er í sjálfu sér eftirsóknarvert markmið
en þessi samningur er of dýru verði keyptur að mínu mati og alltof
seint að gera hann nú, aðeins fjórum dögum áður en veiðar hefjast.
LfÚ, FFSf og SSf hafa öll hafnað því að þessi samningur væri
gerður, enda óviðunandi eftirgjöf á lokasprettinum af hálfu fslands
til þess að ná þessum samningi í höfn. VSFÍ eitt telur að þessi
samningur sé ásættanlegur fyrir fslands hönd. Það var svo sem vitað
mál að ef FFSÍ teldi samninginn slæman kost þá væri hann þar með
samþykktur af formanni Vélstjórafélags fslands.
Guðjón A. Kristjánsson
Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband íslands,
Borgartúni 18, 105 Reykjavík.
Ritstjórn: Hverfisgötu 8-10,101 Reykjavík, sími 562 6233, fax 562 6277.
Afgreiðsla: sími 562 9933. Auglýsingar: sími 587 4647.
Ritnefnd: Guðjón A. Kristjánsson
Benedikt Valsson
Hilmar Snorrason
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurjón Magnús Egilsson
Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir
Setning og tölvuumbrot: Útgáfufélagið
Filmuvinna, prentun & bókband: G. Ben. Edda prentstofa hf.
Forseti FFSÍ: Guðjón A. Kristjánsson.
Framkvæmdastjóri: Benedikt Valsson.
Aðildarfélög FFSÍ: Skipstjórafélag íslands, Skipstjórafélag Norðlendinga,
Stýrimannafélag Islands, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta,
Félag matreiðslumanna, Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Reykjavik;
Bylgjan, (safirði; Hafþór, Akranesi; Kári, Hafnarfirði; Sindri, Neskaupstað;
Verðandi, Vestmannaeyjum; Vísir, Suðurnesjum; Ægir, Reykjavík.
W
22 Samheiji græddi yfir 300 miiyónir króna
Úttekt á því hversu mikið útgerðir hafa grætt á leigu kvóta
og hversu mikið aðrar útgerðir hafa borgað fyrir hann.
56 Breytingar á veðurspám
fýrir úthafsflotann
Guðmundur Hafsteinsson,
forstöðumaður þjónustusviðs
Veðurstofunnar, skrifar um
veðurspár fyrir sjómenn.
Þversögn
íslenskrar
dægurlagasögu
Framhald af samantekt um sjó-
mannalög og sjómannatexta. Meðal
efnis er viðtal við Gylfa Ægisson.
28 Hlógum í hálfan mánuð þegar
kokkurinn handleggsbrotnaði
Snorri Sturluson, íþróttafréttamaður á Bylgjunni
og fyrrverandi sjómaður.
Forsíðumyndina
tók Spessi af
Eyjólfi Guðmundi Ólafssyni.
53
Spessi og hetjumar
Vestfirskir sjómenn með augum Sigurþórs Hallbjörnssonar.
6
6
7
8
10
11
12
14
15
16
18
Sjómannafélagið
vill sýna samstöðu
Sjómannadagur á laugardegi,
segir Eiríkur Stefánsson
Aldan mótmælir
Meiri þátttaka sjómanna, segir Óskar Már í Vestmannaeyjum
Fáum ekki aðstoð hér heima, segir Birgir hjá Sjómannafélaginu
Formenn skipta um báta
Sigurður Ólafsson á isafirði talar um sjómannadaginn
Óvissa aftur í haust, segir atvinnulaus sjómaður
Ekki heppileg fjölskylduíþrótt, segir vélsleðamaðurinn
og vélstjórinn Sigurður Rögnvaldsson
Betri fjárhagur Öldunnar
Utan úr heimi
30 Útrás fyrir allt annað en meðalmennskuna
Gunnar Svali Egilsson skipstjóri á torfærubíl og keppir allt sumarið.
Klippumar dönsuðu
í sjávarskorpunni
ítarlegt viðtal við Helga
Hallvarðsson skipherra.
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR