Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Síða 15
Sigurður Rögnvaldsson
er yfirvélstjóri á Akureyrinni.
Hann á vélsleða og reynir
að nota hann í fríum
Ekki
heppil
Siguröur er ahugamaður
um vélsleðaakstur og
reynir að komast sem
oftast á sleðann.
sleða og á einn slíkan, Arctic
Cat ext. Þetta er annar sleðinn
sem Sigurður á. Hann segir
sleðaáhugann ekki heppilegan
fyrir fjölskyldur, en hefur hann
reynt að fá fjölskylduna með?
„Konan fer á sleða. Við byrj-
uðum í þessu saman en það
hefur dregið úr því eftir að
börnin komu, það er erfiðara
að fara með þau á sleða.“
Sigurður segist ekkert hafa
farið á sleðann í vetur, hafi ekki
hreyft hann síðan i júní í fyrra.
„Það hefur ekki verið gott færi í
styttri ferðir, en ég hef heyrt að
það sé gott færi suður á há-
lendinu. Þær ferðir eru hins
vegar lengri og kosta meiri
tíma. Ég hef farið nokkrar lang-
ar ferðir á hálendið og jöklana
og eins á Strandir. Þetta er
mjög skemmtilegt."
Það er ekki nóg að eiga
sleða, það þarf líka jeppa og
kerru. Sigurður á allt þetta og
eins er hann með GPS á sleð-
anum. Hann segir úthaldið allt
kosta rétt um eina milljón.
„Þegar börnin eru komin á
þann aldur að þau geta keyrt
sjálf - og ef til er fullt af pen-
ingum til að setja sleða undir
hvern rass - þá getur fjölskyld-
an sameinast í þessu tóm-
stundagamni. Ég er með það
ung börn að það getur ekki
orðið strax.“
Sigurður er ekki með fleiri
bakteríur. „Ég hef látið vélsleð-
ann duga. Kannski væri heppi-
legra að hafa áhuga á golfi, þá
væri hægt að skreppa dags-
part! Það sem ég sækist eftir á
sleðanum er að geta ferðast
yfir stórt svæði í einu og komið
á staði sem erfitt er að komast
á öðruvísi.
Það eru góð svæði í ná-
grenni Akureyrar sem hentugt
er að skjótast á og það er
nokkuð um sjómenn hér sem
eiga sleða. Það er gott að hafa
hobbí og við sem erum með
sleðadellu gerum fleira en að
ferðast. Undirbúningurinn fyrir
ferðir er mikill og hann er óneit-
anlega hluti af þessu öllu.“ ■
„Ég er með sleðadellu, það
er ekki hægt að segja annað.
Þetta áhugamál hentar þó ekki
vel fjölskyldulífi, passar ekki al-
veg. Fjölskyldan getur ekki
verið saman í þessu,“ sagði
Sigurður Rögnvaldsson, en
hann er áhugamaður um vél-
Hjónakornin Ída Bergmann og Leif Halldórsson frá
Patreksfirði mála bátinn á meðan þau bíða eftir smiðjukarlinum, en
þau eru að gera klárt fyrir snurvoðina.
SjÓMANNABLAÐIÐ VlKINGUR
15