Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Síða 30
Gunnar „Svali“ Egilsson
‘
segir að margt^é líkt með
togaraútgerð og þátttöku
í torfærukeppni.
„Maður fer út til að fiska
sem mest og keppir
til sigurs í torfærunni,"
fýrir allt annað en
meðalmennskuna
Hann er búinn að selja útgerðina og hætt- gerði út á troll í átta ár, og framtíðin er í lákshöfn. Auk togara Páls eru nokkrir útgerð-
ur sem skipstjóri á 300 tonna togaranum sem
hann átti. í sumar, þegar torfæran byrjar, ætl-
ar hann að halda um stýrið á gömlu Heima-
sætunni; Svalanum eins og hann heitir í dag.
Sá sem hér er fjallað um er Gunnar
Egiisson, Gunnar „Sva]i“ Egilsson, eins og
hann er betur þekktur. Hann gaf sér tíma á
dögunum til að skríða undan torfærutröllinu
og ræða við blaðamann Víkings.
Skipstjóri hálfa ævina
Þótt hann sé einungis 38 ára hefur hann
verið skipstjóri í 18 til 19 ár eða helminginn
af ævinni. Hann var orðinn þreyttur á
kvótaskerðingunni og seldi því útgerðina og
austur-þýska tappatogarann, sem hann
nokkuð lausu lofti þótt hann segi að lík-
legast verði ofan á að hann festi kaup á 20 til
30 tonna bát.
„Ég er búinn að vera í sjómennsku í 22 ár,
þar af níu í útgerð. Ég byrjaði á sjó þegar ég
lauk gagnfræðaskóla og réð mig í eitt sumar
sem kokk á bát. Eftir það hét ég því að fara
aldrei á sjó meir, því ég var svo sjóveikur. Það
var agalegt að vera svona sjóveikur og kokkur
í þokkabót. Ég fór í land seinnipart sumars
en einhvern veginn þróuðust mál þannig að
ég fór aftur út þegar vertíðin byrjaði og þá
fann ég ekki fyrir sjóveiki. Síðan hef ég verið
á sjó,“ segir Gunnar.
Utgerðin hans var sú stærsta á Selfossi en
togarinn, Páll ÁR-401, var gerður út frá Þor-
armenn smærri báta og trillukarla með út-
gerð á Selfossi. Gunnar segir þetta hafa verið
ágætis fyrirkomulag því þegar heim kom
hefði hann verið laus frá.
Hugsanlega á net og humar
Astæðan fyrir því að hann seldi útgerðina
er að sögn Gunnars sú mikla kvótaskerðing
sem átt hefur sér stað undanfarin ár. Fyrir
nokkrum árum hafi útgerðin haft þúsund
þorskígildistonna kvóta en hann hafi verið
kominn niður í 600, þar af 120 í þorski.
Skamman tíma hafi tekið að fiska upp í það.
Ef til þess kemur að hann kaupi bát núna tel-
ur hann líklegast að hann verði gerður út á
net og jafnvel humar.
30
SJÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR