Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Blaðsíða 31
„Maður getur gleymt allri meðalmennsku.
Maður fer út í þetta til að vinna. Þetta er eins
og að fara út á sjó. Maður fer út til að fiska
sem mest. í dag er málum hins vegar svo
háttað að það er staðið í vegi fyrir því að
maður geti það, þannig að ég fæ útrás fyrir
annað en meðalmennskuna með því að
keppa í torfærunni."
Bíllinn „rifinn í spað“
Eins og fýrr segir er Gunnar Iíklega |)ekkt-
ari meðal almennings fyrir annað en skipaút-
gerð. Hann hefur undanfarin ár verið fram-
arlega í flokki torfærukappa á Svalanum sín-
um. Undirbúningur fyrir komandi Islands-
mót er á Iokastigi, en frá páskum hefur bíll-
inn verið „rifinn í spað“ oftar en einu sinni,
skipt um slitfleti og hann endurbættur.
„Þetta er mjög mikil vinna en það er farið
að lifna yfir áhuga á þessu erlendis. Þetta ár
skiptir mjög miklu máli hvað það varðar. Það
hafa verið að koma hingað til lands erlendir
sjónvarpsmenn og í fyrra var þetta sýnt á
Eurosport og vakti mikinn áhuga. Sjónvarps-
útsendingarnar gefa í sjálfu sér ekki mikið af
sér en við erum að vona að þetta skili pening-
um í formi auglýsingasamninga þannig að
við hættum að borga með sportinu."
Hvort tveggja hörkuvinna
Erþetta ekki dýrt sport? Erþettafyrir aSra en
útgerðargróssera og athafnamenn aS standa í?
„Ég er nú bara eins og hver annar
launamaður þótt ég hafi átt þetta fyrirtæki og
rekið það. Auðvitað er þetta samt dýrt og
hefur kostað skildinginn."
Er eitthvað svipað með útgerð á svona bíl og
útgerð togara?
„Þetta er hvort tveggja hörkuvinna. Það er
hins vegar hægt að sameina þetta. 1 fyrra tók
ég sumarfrí þessar vikur þegar keppnirnar
voru, enda á þetta hug manns allan.“
Ætla menn sér stóra hluti í sumar?
„Það verður að vera. Maður getur gleymt
allri meðalmennsku. Maður fer út í þetta til
að vinna. Þetta er eins og að fara út á sjó.
Maður fer út til að fiska sem mest. I dag er
málum hins vegar svo háttað að það er staðið
í vegi fyrir því að maður geti það, þannig að
ég fæ útrás fyrir annað en meðalmennskuna
með því að keppa í torfærunni.“
„Þetta er hvort tveggja hörkuvinna. Það er
hins vegar hægt að sameina þetta. í fyrra tók
ég sumarfrí þessar vikur þegar keppnirnar
voru, enda á þetta hug manns allan,"
segir Gunnar þegar hann ræðir
sjómennskuna og íþróttina.
Gaman væri að prófa eitthvað nýtt
Gunnar fór til Marokkó í sumarfrí fyrr á
þessu ári. Þar eyddi hann löngum stundum
við höfnina og kynnti sér lauslega útgerðar-
hætti heimamanna.
„Það er mjög mikil útgerð þarna og ég fór
talsvert niður á bryggjurnar og skoðaði. Þeir
gera út togara, bæði frystitogara og ísfisktog-
ara, og svo er talsvert um fiskibáta þarna.
Maður sá hins vegar að það væri hægt að gera
miklu meiri hluti. Þeir voru mest að landa
smokkfiski en minni bátarnir lönduðu alls
konar fiski sem ég kann ekki að nefna.“
Gunnar segir að það hafi verið merkilegt
að sjá hvernig heimamenn meðhöndluðu afl-
ann og gefur þeim ekki háa einkunn fyrir
vöruvöndun og annað í þeim dúr.
„Miðað við hvernig við vinnum þetta þá
hafði ég ekki mikinn áhuga á að borða þetta.
Þetta var geymt lengi úti í 30 stiga hita og svo
var gert að þessu úti þegar kaupandi fékkst.“
Það hefiir ekki heillað þig að hefya lítgerð
þarna?
„Nei! En það væri samt gaman að prófa
eitthvað nýtt. Maður hefur haft augun opin
fyrir því á þessum tímamótum - hvort mað-
ur eigi að bíða með það að kaupa bát og fara
út, leita að nýrri vinnu og víkka sjóndeildar-
hringinn, sem er allt of þröngur hjá okkur ís-
lendingum. Við höfum rætt um þetta hjónin
en ég er ekki með neitt ákveðið í sigtinu enn-
þá. Áður en ákvörðun um það verður tekin
ætla ég mér að takast á við torfæruna,“ sagði
Gunnar og var þar með rokinn undir bílinn.
Pétur Pétursson
Sjómannablaðið Víkingur
31