Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1996, Qupperneq 38
Landhelgisgæslan hefur verið í deiglunni
og Helgi Hallvarðsson skipherra, kempa úr
þremur þorskastríðum, á 50 ára starfsafmæli
um þessar mundir. Auk þess á sjálf Gæslan
70 ára afmæli 1. júlí. I viðtali við Jakob Bjarnar
Grétarsson skimar Helgi yfir ferilinn,
segir af góðkunningjum Gæslunnar, herskáum
Bretum og hugmyndum sínum um nýtt varðskip
f «i/yrir rúmu ári tókum við Bjart frá
/ mti Neskaupstað að veiðum á lokuðu
JJSM svæði. Það var ekki skyndilokunar-
svæði heldur reglugerðarhólf og stýrimað-
urinn var á vaktinni en skipstjórinn sofandi.
Það hefur ekkert bjargað þeim hingað til.
Skipstjórinn hefur verið kærður engu að
síður og kæran byggst á því að hann sé
ábyrgðarmaður." Það er Helgi Hallvarðs-
son hjá Landhelgisgæslunni sem hefur orðið
og hann er spurður hvort skipstjórar hafi
skákað í því skjólinu að þykjast hafa verið
sofandi þegar skip þeirra eru staðin að ólög-
legum veiðum?
„Égþ ori ekkert að fullyrða en maður hefur
talið svo vera. Þá er ég ekki síður með bresku
togaraskipstjórana í huga. En þetta er nýtt.
Afli og veiðarfæri voru gerð upptæk í nýleg-
um dómi en skipstjórinn sýknaður á þeim
forsendum að hann hefði verið í koju. Stýri-
maðurinn var heldur ekki dæmdur, enda
engin kæra lögð fram á hendur honum. Ég
hef alltaf litið svo á, og hélt að það væri í sjó-
lögum, að skipstjórinn væri ekki aðeins æðst-
ráðandi um borð heldur bæri hann ábyrgð á
öllu því sem misfærist. Ég veit af mörgum
dómum þar sem skip hefur strandað, skip-
stjóri sofandi í koju og stýrimaður á vaktinni
og þeir hafa báðir verið dæmdir. Það er stór
við slíkum uppákomum í framtíðinni,“ segir
Helgi, augljóslega ekki sáttur við þetta for-
dæmisgildi. Nú segja gárungarnir að allir
skipstjórar fari í náttfötin þegar skip þeirra
leggja frá bryggju og meðal Gæslumanna
gengur skipstjórinn á Bjarti undir nafninu
„náttfataskipstjórinn".
SJÓMAÐUR I HÚÐ OG HÁR
30. júlí 1946 steig Helgi um borð í varð-
bátinn Óðin, sem þá var undir stjórn Eiríks
Kristóferssonar. „Það var ekki hjá leiðum
að byrja,“ segir Helgi, sem er að nálgast 50
ára starfsafmæli hjá Landhelgisgæslunni.
Helgi byrjaði sem viðvaningur, ekki beint
virðulegur titill, en hann bendir á að það sé
þó skárra en á flutningaskipunum. „Þar byrj-
aðir þú sem óvaningur, síðan viðvaningur áð-
ur en þú varðst háseti.“
Það er ekki ofsögum sagt að sjómennskan sé
Helga í blóð borin. Hann er fæddur 12. júní
1931 við Seljaveg, þar sem Landhelgisgæslan
er nú til húsa. Foreldrar eru þau Guðfinna
Lýðsdóttir og Hallvarður Rósinkarsson,
vélstjóri á varðbátnum Óðni og þar áður
smyrjari áÆgi I. Helgi er einn sex bræðra sem
ólust upp í anda Gæslunnar. Landhelgin var
þá sem nú hitamál, enda var hún ekki stór þá,
einungis þrjár mílur frá annesjum.
38