Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 6
Viðskipti með kvóta voru tvöfalt meiri á síðasta fiskveiðirári en árinu á
undan. Það eru ótrúlegir fjármunir sem ganga á milli manna í þessum
viðskiptum. Þá er sama hvort miðað er við leiguverð til eins árs eða sölu-
verð, en eðlilega er verulegur munur á fjárhæðunum, eftir því við hvort er
miðað. Samkvæmt leiguverði hafa verið borgaðir rúmir sjö milljarðar í
kvótaviðskiptum á einu ári
725 þusund tonn
, í kýótayi§skiptum
a einu an
Guðjón Guðmundsson al-
þingismaður hefur áhyggjur
af þróun á framsali aflaheim-
ilda. Hann bendir á mikla
aukningu framsals milli flsk-
veiðiáranna 1995 til 1996 og
1996 til 1997. Á fyrra árinu
skiptu 336 þúsund tonn um
hendur, en á seinna árinu 725
þúsund tonn. í þorskígildum
er einnig mikil aukning, en á
fyrra árinu voru þorskígildin
212 þúsund tonn og á seinna
árinu 324 þúsund tonn.
Til að reikna verðmæti þess
kvóta sem skipti um hendur á
síðasta flskveiðiári er hægt að
styðjast við tvennar forsend-
ur. Annars vegar verð á leigu
til eins árs og hins vegar á
söluverði kvóta. Ef mið er tek-
ið af leiguverði voru rúmir sjö
milljarðar króna greiddir fyrir
kvóta á síðasta fiskveiðiári, en
rétt tæpir 60 milljarðar ef mið
er tekið af söluverði kvóta.
„Þessi viðskipti aukast mik-
ið á milli ára, sérstaklega á síð-
asta fiskveiðiári. Ég hef eðli-
Iega áhyggjur af þessu og hef
haft efasemdir um þessa
Guðjón Guðmundsson
verslun með kvóta og mér
sýnist þessa mikla aukning
sýni að taka verður á þessu.
Ég minni á frumvarp mitt og
Guðmundar Hallvarðssonar,
þar sem gert er ráð fyrir að
framsalið verði bannað nema
til skipta á fisktegundum og
annað slíkt. Það frumvarp var
sent til umsagnar og aðeins
LÍÚ var á móti því, en öll sam-
tök sjómanna eru hlynnt
frumvarpinu. Ég held að þetta
kerfi gangi ekki óbreytt og í
andstöðu við samtök allra
starfandi sjómanna,“ sagði
Guðjón Guðmundsson al-
þingismaður.
Nú njótið þið stuðnings
samtaka sjómanna, en
hvað með stuðning á Al-
þingi?
„Það er nú það, hann hefur
ekki verið nægur til þessa.
Málið er komið aftur til sjávar-
útvegsnefndar þingsins og
það kemur í ljós hvernig verð-
ur tekið á því. Ég er sannfærð-
ur um að tíminn vinnur með
þessu máli. Óbreytt kerfi
stenst ekki í andstöðu sjó-
manna, enda hefúr það leitt
til tveggja verkfalla. Menn
hljóta að verða að mætast í
þessu máli, sama hvort það
verði eins og við leggjum til
eða einhvern veginn öðruvísi.
Þessi óheftu viðskipti með
aflaheimildir ganga ekki
upp.“
Sérð þú fyrir þér að kvót-
inn, og þá sérstaklega fram-
salið, verði kosningamál í
nœstu alþingiskosningum?
„Það vona ég ekki, ég held
að það verði búið að taka á
þessu máli fyrir þann tíma. Ég
er bjartsýnismaður og treysti
því að búið verði að finna sátt
fýrir vorið 1999,“ sagði Guð-
jón Guðmundsson. ■
6
Sjómannablaðið Víkingur