Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 58
Guðjón á skrifstofu FFSÍ að Borgartúni 18.
Seinvirk dóms-
KERFI.
Á formannaráð-
stefnu FFSÍ á Akur-
eyri sl. haust sagði
ég að illa gengi að
koma málum sem
snerta kvótabrask í
gegnum dómskerfið og í skjóli þess tæk-
ist óprúttnum útgerðarmönnum að láta
sjómenn greiða kostnað við kvótaleigu
og kvótakaup. Ég hélt því líka fram að
áhugi sjávarútvegsráðherra sem jafn-
framt væri dómsmálaráðherra fyrir mál-
um sem snéru að réttarstöðu sjómanna í
þessum kvótabraskmálum væri lítill enda
snéru þau að hinu umdeilda frjálsa fram-
hefðum á annað borð einhver slík mál
undir höndum. Fáum dögum síðar voru
ráðherra send 3 mál og önnur 3 mál á
fyrstu mánuðum þessa árs. Við höfum
síðan verið af og til að spyrjast fyrir um
hvað þessum málum liði í hinu skilvirka
rannsóknar og dómskerfi. Það síðasta
sem vitað er, er að einu máli lauk á þann
veg að þar sem aðeins var um tilraun að
ræða til þess að láta sjómenn taka þátt í
kostnaði við öflun veiðiheimilda sem
mistókst, verði ekki refsað fyrir það að
gera slíka tilraun. Hin 5 málin sem FFSI
sendi sjávarútvegsráðherra eru ennþá
óupplýst í kerfinu. Niðurstaðan enn sem
komið er sú að sömu veggir stoppa mál-
in þótt þau færu þessa leið með velvilja
sjávarútvegsráðherra.
Ekki jafnir fyrir
LÖGUM.
Jafnvel gengur
þetta svo langt að
forsvarsmenn stórra
fyrirtækja eins og
Borgeyjar h/f kom-
ast upp með að neita
að mæta íyrir rétti til
þess að gefa upplýs-
ingar. Ef ég man rétt
var það einnig sami
aðili sem komst
framhjá reglunni um
51% veiðiskyldu
annað hvert ár og
hélt veiðileyfi
Hvanneyjar SF 51
þrátt fyrir það. Ég
hef sjálfur aldrei
kynnst því að þurfa
ekki sjálfur að svara
til saka fyrir brot,
jafnt þó sök væri
eður ei. Við erum ef
til vill ekki jafnir fyr-
ir lögum.
Sjö dómstig.
Sjómannasamtök-
in eru búin að fara
með eitt mál í gegn-
um sjö dómstig.
Málið tengist fyrir-
tækinu Þormóði
ramma - Sæberg h/f
á Siglufirði og Ólafs-
firði og sjálfsagt fer
málið á átta dómstig áður en yfir lýkur.
Okkur í sjómannasamtökunum er svo
sem alls ekki neitt sérlega illa við lög-
fræðinga en við viljum samt forðast að fá
þá alla í vinnu.
Illdeilur og óveiddur fiskur.
Það hlýtur að vera afar leiðinlegt að
vera heiðvirður útgerðarmaður eins og
halda frjálsu leigukvótaframsali í Iögum
um stjórn fiskveiða óbreyttu og kveða
auk þess á um það í Iögum líka að ekki sé
nauðsynlegt að útgerðir veiði nema 51%
af kvóta sínum annað hvert ár, opna
þann möguleika upp á gátt að braska
með allan kvótann annað árið og 49%
hans hitt árið. Síðan aftur allan kvótann
og þá næst 49% og þannig koll af kolli
áratugum saman.
Þetta hefur orðið til
þess að útgerðir líta
á kvótann sem sína
eign, en ekki aðeins
nýtingar og veiði-
réttindi eins og rétt
væri. Þannig hafa
fleiri og fleiri útgerð-
ir gert kröfu til þess
að aðrir borguðu
þeim fyrir þessi rétt-
indi annað hvort
með þvi að leigja frá
sér og stundum aft-
ur til sín jafnvel í
sömu tegund eða
lækka verðið til sjó-
manna vegna leigu-
brasksins. Vissulega
eru til útgerðir sem
aldrei blanda kvóta-
rétti inn í fiskverð.
Sem dæmi má nefna
fyrirtæki eins og
I.jósavík, Ögurvík og
Pétur Jónsson og
fleiri mætti telja þó
það verði ekki gert
hér.
sali sem sjávarútvegsráðherra væri mjög
hlynntur.
Sex mál.
Daginn eftir laugardaginn 30. nóvem-
ber fengum við bréf frá ráðherra þar sem
boðin var fram aðstoð við að koma mál-
um er snerta kvótabrask áleiðis rétta boð-
leið í rannsóknar og dómskerfinu ef við
58
Sjómannablaðið Víkingur