Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Síða 11
legum vom lnindruö báta í höfn og mikið fjör. „Stundum vom hundruð kalla í röð að komast í eina baðhúsið á Sigló til að þvo af sér gnitinn. Önnur sambæri- leg röð var við símstöðina þegar rnenn voru að reyna að hringja heim til sín. Þetta þætti ekki aðbúnaður í dag,“ segir Óli. Verk kokksins var að kaupa kostinn og koma honum sjálfur um borð. Allt uppundir tíu bátar voru bundnir utan á hverjum öðrum. „Ég mátti bera kostinn yftr alla bátana. Það var erfltt verk en þar sem ég var á hærri hlut þótti köllunum ekki ástæða til að hjálpa mér. Við fiskuðum mjög vel þetta sumar og vorurn aflahæsti Vestmannaeyjabáturinn. í lok sumarsins samsvaraði hýran því sem nýr bíll úr kassanum kostaði. Miðað við bílverð í dag slagar sú upphæð líklega upp í eina og hálfa milljón.“ Kjólar mátaðir Næsta vetur komst Óli á samning í framreiðslu á Hótel Borg. Eftir að hann lauk þjónsnáminu fór hann fljót- lega á Gullfoss og starfaði þar í flmm ár. Þar var hann bæði þjónn í matsal og á bar. Á þessum tíma var „Gullfoss með glæstum brag“ eins og segir í textanum. „Þá var Gullfoss listiskip með fína farþega, sérstaklega yfír sumartímann. Á veturna voru farþegar færri en skipið í vöruflutningum. Farrýmin voru þrjú á sumrin en á 3ja farrými voru yfírleitt útlend- ingar á leið til íslands. Menn eins og Halldór Kiljan, Bjami Benediktsson, Ásbjörn Ólafs- son og önnur fyrirmenni sigldu með skipinu. Brottför og koma var eins og viðhöfn því fjöldi borgarbúa var á bryggjunum í hvert sinn.“ Fyrir ungan mann var nokkur upphefð í því að vera í starfí á svo fínu skipi. Á sjö- unda áratugnum var enn nokkuð fátæklegt vömúrval í verslunum landsins en ung- lingaverslanir eins og Karna- bær vom að stíga sín fyrstu skref. „Það þótt líka fínt að fá fatnað frá útlöndum og lík- lega eimir af þessu enn hjá landanum miðað við inn- kaupaferðirnar. Við höfðum í litlu öðm að snúast en að kaupa kápur og dragtir á vini og vandamenn. Menn voru með rnálin en svo mátaði maður líka kápur og kjóla til að vera viss. Svo þótti makk- intossið voða fínt. Menn sótt- ust líka eftir því að fá vín frá skipinu og sendu jafnvel leigubíl eftir flöskunni. Með þeim kostnaði var flaskan lík- lega ódýrari í Ríkinu en það þótti meiri klassi yfír flösk- unni frá Gullfossi,“ segir hann og ekki vom veitingam- ar um borð neitt slor. „Kalda borðið var alveg gríðalega glæsilegt og auðvitað kostaði þetta mikið. Mannskapurinn í kringum svona rekstur er fjölmennur. Farþegamir á 3ja farrými greiddu mjög lítið fyrir farið enda aðstaðan ekki mikil, hengikojur til að sofa í. Þeir vom samt í sama mat og aðrir farþegar. Ég hitti einu sinni farþega á Þingvöllum viku eftir að þeir komu til landsins. Þá vom þeir að kaupa sína fyrstu máltíð. Fram til þess hafði „nestið” þeirra af kalda borðinu dug- að þeim til viðuværis. Fólkið hamstraði hreinlega mat til að spara.“ Tíu ÁR Á Hótel Íslandi Frá Gullfossi lá leið Óla í Glaumbæ en þar starfaði hann til desember 1971 er Glaumbær brann. Þá tók við rekstur Óðals, Hollywood, Broadway og að endingu á Hótel ísland. Þann 17. des- ernber í ár em tíu ár liðin frá því hótelið var formlega opn- að. Þrátt fyrir umsvif í veit- ingarekstrinum segist Óli oft hugsa til sjómennskunnar. „Mér hefur dottið í hug að fara einn og einn túr, til dærnis á togara. Ég fylgist enn með aflafréttum og þekki enn marga báta. Ég fer reglulega niður á höfn til að fylgjast með. Ég hef alltaf sterkar taugar til útgerðar og sjómennsku," segir Óli Lauf- dal. Kannski hann eigi eftir að fara einn túr í ffamtíðinni. Hann getur þó altént eldað og þjónað. ■ Sjómannablaðið Víkingur 11

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.