Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 39
„Hún er ákaflega aðlaðandi persóna, viljaföst, heiðarleg og ákveðin. Þessir eig-
INLEIKAR ÁSAMT PERSÓNUTÖFRUM HENNAR HEILLUÐU MIG OG HEILLA ENN.“
son og Jón Baldvin hafi hent þér út úr
ríkisstjóm í beinni útsendingu.
„Þá var stjórnarsamstarflð í raun um
garð gengið. Það var bara spuming hver
yrði á undan að tilkynna að samstarfmu
væri lokið. Þeir unnu það kapphlaup. Ég
vona að þeir séu ánægðir með það. En
þetta fræga sjóðasukksævintýri var stórt
skref afturábak í pólitísku siðferði. Það
hafði slæmar efnahagslegar afleiðingar.
Hluti lánanna lenti á skattgreiðendum,
annar á sjávarútveginum. Þau munu veik-
ja samkeppnisaðstöðu hans nokkuð fram
á næstu öld. Þetta ævintýri er pólitískur
minnisvarði sem ég vil ekki hafa nafnið
mitt á.“
Svo tókustþið Davtð á um formanns-
embœttið í Sjálfstœðisflokknum, jafna
menn nokkurn tímann slík átök?
„Það skal ég ekkert um segja, en það
var kosið á milli okkar á lýðræðislegan
hátt. Ég hef ekki látið úrslitin vefjast fyrir
mér, hvorki persónulega né í störfum
mínum fyrir flokkinn eða í ríkisstjómum
eftir það. Þeir sem ekki taka báðar hliðam-
ar á pólitíkinni eiga að sinna öðm.“
En nú er sagt að það sé fremur kalt
með ykkur Davíð þátl kurteisin ríki á
yfirborðinu.
„Auðvitað hafa átök eins og þessi ein-
hver áhrif á persónuleg samskipti manna
en það er ekki rétt lýsing að samskiptin
séu köld.“
En fannst þér ódrengilegt af honum
að fara í slaginn við þig?
„Það er alls ekki mitt að kveða úr um
það. Ef tii vill munu einhverjir sagnfræð-
ingar spá í þá hluti síðar.“
VlNÁTTA OG EINKALÍF
Heiðarleiki í samskiþtum við aðra er
eiginleiki sem stjómmálamenn hafa
orð á sérfyrir að stunda ekki. Finnstþér
vera mikið um fals í heimi stjómmál-
anna eða hentistefnukunningsskaþ?
„Mér flnnst eins og það sé mun minna
um sanna vináttu í heimi stjórnmálanna
en víða annars staðar. Það vom mikil um-
skipti fyrir mig að koma úr öðmm störf-
um til starfa í pólitík vegna þess að ég
varð svo áþreifanlega var við þennan
mun.
Ég var um tíma framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins. Þá átti ég
bæði rnikil samskipti við fyrirtæki og fé-
lagasamtök í landinu og ekki síður við for-
ystumenn Alþýðusambandsins og stærstu
verkalýðsfélaganna. í þessurn samskipt-
um ríktu mjög ákveðnar reglur um trúnað
sem aldrei bmgðust. Það vom viðbrigði
og viss vonbrigði að koma úr þessu um-
hverfi inn í heim stjómmálanna því þar er
þessi trúnaður fyrir hendi í mun takmark-
aðra mæli. í heimi stjórnmálanna em
Sjómannablaðið Víkingur
39