Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Blaðsíða 30
Ótrúlegt ævintýri
einstaks manns
Eirðariaus
förusveinn
á 18. öld
Hvað býr annars í huga? Hvað veldur því
að velstæður íslenskur bóndi, 27 ára gamall,
leysir upp heimilið sitt, kemur börnunum
sínum í fóstur og heldur út í lönd árið 1753
og gerist farmaður og ævintýramaður?
Árni Magnússon hét þessi maður. Hann
var kominn út af vel mönnuðu og sæmilega
efnum búnu fólki, og ekkert líklegra en hann
kæmist von bráðar í stórbænda tölu. Og þótt
hallæri væri í landi myndi það ekki mjög
bitna á honum. Ekki hafði hann gerst brot-
legur við lög, því utan heldur hann með vega-
bréf frá amtmanni, og hann siglir með skipi
sem sjálfur landfógetinn hafði umsjón með. í
kunnum endurminningum sem eftir hann
liggja, hefur hann sagt að brottförin hafi
hann borið „hryggð í hjarta af þönkum“ sín-
um. Stafaði hryggðin af konumissi, eigin-
konu eða einhverrar annarrar? Eiginkona
hans mun hafa látist um þessar mundir.
Saknaði hann barna sinna og fósturjarðar?
Eða færði hann þessar fórnir hinni eilífu æv-
intýraþrá, sem margan manninn grípur helj-
artökum? Af endurminningum hans má ráða
að hann hafi verið dálítið brokkgengur og
talsvert upp á heiminn, kynlegur kvistur í lífs-
ins ólgusjó og haldinn svo undarlegu eirða-
leysi að alla ævi gat hann aldrei íýllilega sam-
lagast útlendingum, og reyndar heldur ekki
löndum sínum. Hann verður einn víðförlasti
Islendingur sem um getur á 18. öld. Hann
sótti heim fjórar heimsálfur, en gerðist liðlega
fimmtugur barnakennari á Jótlandi og undi
við það í sautján ár, og mun barnakennslan
hafa átt vel við hann. Síðan fer hann á flæking
um Noreg og Suður-Svíðþjóð, snýr til Dan-
merkur aftur og eftir það gerist svo sem ekk-
ert í lífi hans, enda þá komin á efri ár.
Árni Magnússon kenndi sig við bæinn
Geitastekk í Hörðudal, Dalasýslu, sem nú
heitir Bjarmaland. Hann mun hafa verið
fæddur 1726, og því samtímamaður margra
Háseti nýkominn úr Kínaferð.
Hann er kæddur í nankinbuxur, bláa
klæðistreyju með gylltum hnöppum,
hörskyrtu og með kollbláan hatt á höfði.
30
SjÓMANNABLAÐIÐ VfKINGUR