Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Qupperneq 72

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.2000, Qupperneq 72
Landssamband veiðarfæragerðar er 50 ára og af því tilefni var rætt við Magna Guðmundsson formann sambandsins Við stöndum framar öðrum þjóðum Hálf öld er nú liðin frá stofnun Lands- sambands veiðarfæragerða. Formaður fé- lagsins er Magni Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Netagerðar Vestfjarðar hf. á (safirði. Sjómannablaðið Víkingur spjallaði við Magna í tilefni þessara tímamóta. Hann var fyrst spurður hvort efnt hefði verið til afmælishátíðar hjá sambandinu. „Lunginn úr félagsmönnum fór til Portú- gal ásamt mökum til að halda upp á tíma- mótin. Við notuðum tækifærið og héldum aðalfund þarna úti og einnig skoðuðum við víra- og netaverksmiðjur. Það eru 14 fyrir- tæki sem eiga aðild að Landssambandinu og elst þeirra er Netagerðin Ingólfur í Vest- mannaeyjum og síðan Netastofa Hampiðj- unnar. Upphaflega hét þetta Landssam- band netaverkstæðaeigenda. Þá var í lög- um sambandsins að halda skyldi minnst tvo fundi á ári og þar af annan þeirra á Siglufirði um síldartímann. Þetta var í raun- inni hagsmunafélag eigenda netaverk- stæða gagnvart útgerðarmönnum en á þessum árum voru verkefni netaverkstæða aðallega í því sem viðkom síldarnótum og reknetum. Togaraútgerðirnar voru hins vegar sjálfar með netaverkstæði eða fólk úti í bæ sem hnýtti stykki í trollin í ákvæðis- vinnu,“ segir Magni. Mikil breyting hefur orðið á starfi veiðar- færagerða frá því Landssambandið var stofnað. Magni Guðmundsson segir að stærsta breytingin hafi orðið þegar farið var að nota gerviefni í stað náttúrulegra efna. Laust fyrir 1960 var nylon alfarið tekið upp í nætur og síðan uppúr því taka gervi- efnin líka við í botntrollum. Löggilt iðngrein „Með gerviefnum hættir handnýting á botnvörpustykkjunum og farið að hnýta í Landssamband veiðarfæragerða er hálfrar aldrar gamalt. vélum. í framhaldinu verður starf netagerð- armanna nokkurs konar klæðskeraiðn. Við í Landssambandinu höfum lagt mjög mikla áherslu á hinn faglega þátt starfsins. Við viljum styrkja námið og gera það sýnilega og að það sé þannig að það nýtist mönn- um áfram. Hér er um þriggja ára nám að ræða sem komið er inn í áfangakerfi fram- haldsskóla, það er að segja þóklega nám- ið. En menn geta ekki orðið netagerðar- meistarar án þess að kunna handverkið enda er þetta löggilt iðngrein. Ég held því alltaf fram að þetta sé handiðn í orðsins fyllst merkingu því það er geysilega mikil handavinna í starfinu. Eftir að efnið kemur úr vélunum þar sem búið er að hnýta það og spinna tekur mannshöndin við.“ -Hvernig gengur að endurnýja í stétt- inni? „Það gengur þokkalega vel. Alltaf er talsvert um að menn sem hafa verið til sjós fari að vinna við þetta þegar þeir koma í land. Enda eiga þeir oft þetra með að skilja út á hvað þetta gengur. En eftir að þetta komst almennilega inn í skólakerfið er nokkuð um að ungir menn komi inn í þetta nám þótt þeir leggi þetta ekki allir fyrir sig. Þó vildum við sjá meira af yngra fólki koma inn í fagið. Ég fullyrði að við stöndum skrefi framar öðrum þjóðum í þessari atvinnu- grein og þakka það því að hér er þetta lög- gilt iðngrein. Norðmenn öfunda okkur mik- ið af því þar sem þá er námið og kennslan í ákveðnum farvegi sem ekki er hjá þeim. Það er eftirtekarvert hvað það hefur komið fram mikið af nýjungum í veiðarfæragerð einmitt hér á íslandi. Veiðarfæri eru dýr en nú eru að koma fram ný efni sem eru sterkari og þvi hægt að nota grennri þráð. Þar af leiðandi léttast veiðarfærin og við það sparast olía sem er mjög stór út- gjaldapóstur við útgerð.“ -Er þau fyrirtæki sem eiga aðild að Landssambandinu staðsett út um allt land? „Þau eru í Reykjavík, Ólafsvík, ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Neskaup- stað, Hornafirði og Vestmannaeyjum. Stjórnarmenn búa hver í sínum landsfjórð- ungi og við höldum stjórnarfundi gegnum síma sem ódýr og góð leið tii slíkra fundar- halda,“ sagði Magni Guðmundsson. ■ 72 Sjómannablaðið Víkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.