Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Side 8
Vörumiðstöð-Samskipa
Fjölþœtt starfsemi í nýjum höfuðstöðvum Samskipa
Flutningar hefjast
Pann 19. ágúst 2003 tóku 250 starfs-
menn Samskipa fyrstu skóflustungurnar
að nýjum höfuðstöðvum sem jafnframt
hýsir Vörumiðstöð, stærsta vöruhús
landsins. Rúmlega ári siðar eða 7. októ-
ber fluttu starfsmenn Samskipa fyrsta
kassann í Vörumiðstöðina og þar með
voru formlegir flutningar í höfuðstöðv-
arnar hafnir.
Starfsemi Vörumiðstöðvarinnar var
flutt í áföngum yfir fjögurra vikna tíma-
bil og samtals flutt um 12.000 bretti úr
þremur vöruhúsum. Keyrðar voru 750-
800 ferðir með vörur og í flutningunum
unnu 110-120 starfsmenn sem lögðu
samtals um 4.500 manntíma í verkefnið.
Grafískmynd af höfuðstöðvum
Þessi glæsilega bygging sem er ein sú
stærsta á landinu eða rúmlega 27.000
fermetrar mun auk Vörumiðstöðvarinnar
hýsa starfsemi Landflutninga-Samskipa
sem nú er í Skútuvogi, afgreiðslu inn-
flutningsvöru, móttöku búslóða til út-
flutnings, flugafgreiðslu, skrifstofu Jóna
Transport og skrifstofu Samskipa sem nú
eru staðsettar við Holtagarða. Flutningar
á ofantaldri starfsemi verða um áramótin
og munu þá höfuðstöðvarnar komnar í
fulla notkun. Neðan við húsið eru frysti-
geymslur Samskipa sem eru þær full-
komnustu á landinu. Móttaka útflutn-
ingsvöru verður á sama stað við Holta-
bakka í vöruhúsi B.
Eftir farsæla flutninga hefur starfsemi
Vörumiðstöðvarinnar í nýju húsi gengið
afar vel þar sem reynsla starfsmanna,
gott vöruhúsakerfi og vel hannað hús
hefur allt að segja. Geymslurými Vöru-
miðstöðvarinnar skiptist niður í þurr-
vörugeymslu fyrir tollafgreiddar og ótoll-
afgreiddar vörur, frystigeymslu, kæli-
geymslur, olíu- og efnavörugeymslu og
smávöruloft. Auk hefðbundinnar þjón-
ustu við móttöku og afhendingu vöru
getur Vörumiðstöðin boðið viðskiptavin-
um sinum upp á margskonar virðisauk-
ýmsa möguleika á að tengjast Vörumið-
stöðinni í gegnurn tölvukerfið og eiga
þess kost að fá upplýsingar úr kerfinu í
skýrsluformi.
Formlegurflutningur á fyrsta kassanum i nýju höfuðstöðvarnar
Staifsmenn Samskipa takafyrstu skóflustunguna
andi þjónustu
eins og umpökk-
un, ásetningu
strikamerkja, sam-
setningar og svo
framvegis.
í Vörumiðstöð-
inni er fullkomið
vöruhúsakerfi sem
heldur utan um
rauntímaskrán-
ingu vörunnar frá
móttöku til af-
hendingar við-
skiptavina. Við-
skiptavinir hafa
Ávinningur af hýsingu lagers í
Vörumiðstöð Samskipa
Einn helsti ávinningur þeirra sem kjósa
að hýsa lager sinn hjá Samskipum er að
losa um íjármagn þar sem að breytilegur
kostnaður kemur í stað fasts kostnaðar.
Allur kostnaður verður því sýnilegri sem
gefur tækifæri til sparnaðar og bættrar
nýtingar. Einnig þykir mörgum kostur að
fela fagaðila að hýsa fyrir sig lager og
geta þar með einbeitt sér að kjarnastarf-
semi fyrirtækisins.
Forsvarsmenn fyrirtækja sem vilja
kynna sér starfsemi Vörumiðstöðvarinn-
ar betur er bent á heimasíðu Samskipa
www.samskip.is.
8 - Sjómannablaðið Víkingur