Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Qupperneq 24
Bréf til blaðsins frá
íslenskum skipstjóra í Ameríku
Oregon II við bryggju í Veracruz, Mexíkó, 1981.
Þetta eru tæplega 1000 tonna skip. Síðan
hætti ég 1. júní 1996 og var þá búinn að
vera 52 ár á sjó, þar af rúm 40 ár sem
skipstjóri. Hér kemur svo kvæðið:
Að eta úr kagga kjöt
og klæða sig í slorug föt.
Streða við troll og staga í göt
og slást við sérhvern hlut.
Þó Gulltoppur sé gæðaskip
með glæsilegan jólasvip,
þá geng ég þar mín þrautaþrep
og þræla undir drep.
Þetta kvæði er ort eftir Aðalstein Gísla-
son, sem allir sjómenn á þeim árum
þekktu undir nafninu Blásteinn eða bara
Blái. Ort um 1948.
Guiviar Guðmundsson
4 Deneise Street
Lakeview Heights
Lakeville, Massachusetts 02347.
USA
í St. Petersburg, Florida. Þessi bátur var við sömu bryggju og við, en hann var tekinnfullur af
eiturlyfjum. Gunnar í forgrunni.
Síðla haust barst ritstjóra Víkingsins bréf
frá íslenskum skipstjóra sem hefur verið
búsettur áratugum saman í Bandaríkjun-
um. Bréfritari vildi biðja blaðið fyrir
kvæði 1 jólablaðið. Ritstjóra þótti ekki
síður fengur að bréfinu sjálfu fyrir les-
endur blaðsins og tók sér það bessaleyfi
að birta það hér með ásamt kvæðinu.
Hr. ritstjóri
Mér datt í hug að senda þér nokkrar lín-
ur því nú eru jólin að nálgast og ég er
með kvæði sem ég held að mundi passa
vel í jólablaðið. En fyrst ætla ég að segja
þér svolítið af sjálfum mér.
Ég heiti Gunnar Guðmundsson, fædd-
ur í Reykjavík 3. október 1929 og því ný-
Gunnar ogfjórir aðmírálar áfundi.
lega orðinn 75 ára. Ég fór fyrst á sjóinn
hjálparkokkur á b/v Belgaum 1944. Skip-
stjóri var Aðalsteinn Pálsson, en kokkur
var Halldór Kjæmested, faðir Guðmund-
ar. Svo var ég á ýmsum togurum sem of
langt er upp að telja. Ég lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum 1950, eftir það var
ég með ýmsa báta, línu frá Keflavík, línu
og net frá Vestmannaeyjum, á hringnót, á
síld, snurvoð og á togurum á milli.
í apríl 1960 fór ég til Bandaríkjanna
svo ég er búinn að vera hér í 45 ár á
næsta ári. Fyrsta árið við rækjuveiðar á
Mexicoflóa, fór eftir það til Newbedford,
sem er skammt fyrir sunnan Boston, og
stærsta fiskveiðihöfn í USA. Var þar á
trollbátum smátíma þangað til ég keypti
minn eigin bát og var með
hann í 10 ár. Ég fór líka til
Alaska á krabbaveiðar i nokkra
mánuði 1970, en líkaði það
ekki. Báturinn minn sökk á
landleið, en þetta voru svona 7-
10 daga túrar. Þeir tóku okkur
upp í helecopter. Þá keypti ég
annan bát, en seldi hann 1980.
Þá tók ég við rannsóknar-
skipi hjá ríkinu, R/V Oregon
II, heimahöfn Pascagaula í
Mississippi og var með hann í
átta ár á Mexicoflóanum og
Karabiska hafinu. Fékk mig þá
færðan á Delaware I á Cape
Cod, rétt hjá þar sem ég bý.
Roðlaust og beinlaust
Friður og ró
til Færeyinga
Hljómsveitin vinsæla Roðlaust og bein-
laust frá Ólafsfirði hefur sent frá sér lag-
ið í Friði og ró í færeyskri útgáfu. Útgef-
andi er Menningar- og listafélagið Bein-
laus biti í Ólafsfirði. Það eru hinir bráð-
hressu skipveijar á frystitogaranum
Kleifabergi ÓF sem skipa Roðlaust og
beinlaust, sem á færeysku nefnist Roð-
leist og beinleist. Á heimasíðu Bjöms
Vals Gíslasonar stýrimanns og for-
sprakka hljómsveitarinnar, kemur fram
að ákveðið hafi verið að snara textanum
yfir á færeysku til þess að Færeyingar
gætu hlustað á þetta skemmtilega lag á
sínu móðurmáli urn jólin. Ekki er að
efa að frændur vorir Færeyingar kunni
vel að meta framtakið.
24 - Sjómannablaðið Víkíngur