Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Page 29
4
Meðfylgjandi myndir tók Jón Páll Ásgeirsson um borð i varðskipinu Ægi þegar Mippt var á tog-
víra þýska togarans Mellumfrá Bremenhaven. Þetta var út í Víkurál, vestur af Bjargtöngum
haustið 1975.
var ósamið við V-Þjóðverja og þeir héldu
áfram veiðum sínum innan íslensku
landhelginnar, enda þótt veiðar þeirra
færu minnkandi vegna þess að íslensku
varðskipin gátu einbeitt sér óskipt að
vestur-þýskum landhelgisbrjótum.
Deilur íslendinga og V-Þjóðverja
halda áfram og átök á íslands-
iniðum
Upp úr stjórnarsamstarfi þingflokka
Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og
Samtaka frjálslyndra og vinstri manna
slitnaði vorið 1974 en þessir þrír flokkar
höfðu markað stefnuna í landhelgismál-
unurn síðan 1971 og staðið að útfærslu
fimmtiu milna landhelgismarkanna.
Þann 30. júní 1974 fóru fram alþingis-
kosningar með þeim afleiðingum að ný
ríkisstjórn undir forystu Geirs Hallgríms-
sonar tók við valdataumum. Baráttan fyr-
ir fullnaðarviðurkenningu á fimmtíu míl-
unum hélt áfram og í beinu framhaldi
kom svo baráttan fyrir tvö hundruð míl-
unum.
Hin nýja ríkisstjórn lýsti því yfir að
hún myndi færa landhelgismörkin út í
tvö hundruð mílur á árinu 1975. Enn
áttu íslendingar margt eftir óuppgert í
samskiptum við Breta og V-Þjóðverja,
sem alltaf héldu því fram að þeir ættu
sögulegan rétt til veiða við Island og
samningslegan rétt samkvæml samning-
unum frá 1961. í októbermánuði 1974
gerðu embættismenn stjórnarinnar drög
að samkomulagi við V-Þjóðverja urn
veiðar þýskra togara hér við land. Sam-
kvæmt þessum drögum var gert ráð fyrir
áttatíu þúsund lonna ársafla þýskra tog-
ara og að í þeirra hópi yrði m.a. sautján
frysti- og verksmiðjuskip. Ríkisstjórnin
hélt því fram að þessi drög væru gerð af
viðskiptalegum ástæðum og talað var um
bókun nr. 6 í því sambandi. Upp komu
mikil mótmæli gegn þessum samnings-
drögum og ríkisstjórnin hætti við samn-
ingsgerðina að sinni.
Á miðunum hélt baráttan áfram við
þýska landhelgisbrjóta og stundum við
breska sem virtu ekki friðlýst svæði en
Bretarnir máttu samkvæmt fyrrgreindum
samningi veiða innan íslensku lögsög-
unnar í sérstökum hólfum. V-Þjóðverjar
bættu við nýjum eftirlits- og hjálparskip-
um á íslandsmiðum, en það voru skipin
Nordenham, Roter Sand og Minden en
þessi skip höfðu áður verið fiskiskip.
Sumarið 1974 var haldið áfram að skera
á togvíra þýskra togara. í ágúst var klippt
á togvíra togaranna Hoheweg BX- 735 og
Hans Böckler BX-679. í september var
skorið á togvíra togarans Seydisfjord BX-
704.
í odda skarst milli íslendinga og V-
Þjóðverja sunnudaginn 24. nóvember
1974 þegar varðskipið Ægir stóð þýska
togarann Arcturus BX-739 að ólöglegum
veiðum. Leyfi fékkst frá stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar til að færa togarann til
hafnar og stöðvaði áhöfn Ægis þá Arctur-
us og send var sveit rnanna yfir i togar-
ann. Farið var með hann til Vestmanna-
eyja. Taka Arcturus þótti mikil tíðindi
því þetta var fyrsti erlendi togarinn sem
tekinn hafði verið að ólöglegum veiðum
og færður til hafnar síðan fiskveiðimörk-
in voru færð út í fimmtíu rnílur.
Taka Arcturus olli mikilli ólgu rneðal
þýskra fiskimanna og Sjómannasamtök í
V-Þýskalandi hótuðu hörðu, m.a. með
því að loka þýskum höfnum fyrir ís-
lenskum skipum, og ríkisstjórnin í Bonn
mótmælti þessari aðgerð og talaði um
nútímasjórán. í kjölfar mótmælanna
fylgdi löndunarbann á íslensk fiskiskip í
þýskum höfnum. Stóðu þá stálin stinn á
milli íslenskra yfirvalda og þeirra þýsku
það sem eftir var ársins 1974 og fram á
sumarið 1975. Vestur-þýskir togarar
héldu einnig áfrarn að stelast til að veiða
innan íslensku lögsögu. Samband ís-
lenskra og þýskra stjórnvalda var mjög
viðkvæmt á þessum tima og ekkert mátti
út af bregða svo ekki fuðraði upp deila.
Til dæmis stóð íslenskt varðskip í júní
1975 vestur-þýskan landhelgisbrjót að
verki og reyndi að stöðva hann og færa
til hafnar. Hann þrjóskaðist við og neit-
aði að stöðva skipið. Varðskipið skaut þá
nokkrum lausum skotum að togaranum
en allt kom fyrir ekki, hann slapp úr ís-
lenskri lögsögu þar sem íslensk yfirvöld
voru hikandi við að færa hann til hafnar.
Hins vegar ekkert hik á þeim þýsku og
ríkisstjórnin í Bonn sendi harðorð inót-
mæli til íslendinga.
Áfram var haldið að klippa á togvíra
vestur-þýskra togara. í lok júní var klippt á
togvíra tveggja, Köln NC-471 og
Wyeberger BX-667. Gamli landhelgisbrjót-
urinn Arcturus BX-739 var enn staðinn að
verki um sumarið og var hann þá hala-
klipptur. Annar gamall landhelgisbrjótur,
Hoheweg BX-735, fékk sömu útreið sem
og Köln NC-471. Af þessu má vera ljóst að
það voru oftast sömu skipin sem stunduðu
ólöglegar veiðar og voru klippt. Hinn 18.
september var klippt aftan úr þýska togar-
anum Gluggstad SK-105. Hinn 4. október
var skorið aftan úr Hoheweg BX-735 og
það ekki í fyrsta sinn.
Guðmundur Kjærnested, sem var skip-
herra á Tý árið 1975, segir að íslensku
varðskipunum hafi tekist að halda V-
Þjóðverjum að verulega leyti fyrir utan
fimmtíu mílurnar eftir að þau gátu snúið
sér nær einvörðungu að þeim. ís-
lensku varðskipunum hafði orðið vel á-
gengt í baráttunni við vestur-þýska land-
helgisbrjóta. Dr. W. Masberg greinir frá
því í Deutsche Fischerei að á þeim þrem-
ur árum síðan landhelgin var færð út i
fimmtíu mílur hafi íslenskum varðskip-
um tekist að hindra veiðar vestur-þýskra
skipa í um 800 skipti og þar af tekist að
klippa á togvíra 39 togara. En það voru
fleiri þýskir togarar klipptir eftir þessa
samantekt Masbergs, þannig að talan
mun vera eitthvað hærri en sú sem hann
gefur upp. Endanleg samantekt um
fjölda klipptra þýskra togara hefur enn
ekki verið tekin.
í Þjóðviljanum birtist grein þann 6.
september 1975 þar sem kvartað er yfir
því að þýsk eftirlits- og sjúkraskip, sem
blaðið kallaði njósnaskip, fái úrvalsþjón-
ustu á meðan samningaumleitanir ís-
lendinga og V-Þjóðverja standi yfir. Dag-
inn áður hafði blaðið ásamt íslenskum
útgerðarmönnum og togaraskipstjórunr
krafist afgreiðslubanns á þýsk eftirlits- og
sjúkraskip. En fengu þessi skip afgreiðslu
í íslenskum höfnum? Svo segja íslenskir
hafnsögumenn ekki hafa verið. Þeir
héldu því franr að þessi skip hefðu ekki
fengið skipaafgreiðslu í þrjú ár eða frá
Sjómannablaðið Víkingur - 29