Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Blaðsíða 43
júní 2003 fór fram skráning á hávaða í
einum af togurum landsins í vistarverum
vélstjóra. í hvert skipti sem troll var
dregið inn og raskaði svefni mældist há-
vaði um og yfir 75 desíbel.
c) Einhæf hreyfing við vinnu.
Pó hægt sé að segja að sjómenn vinni
hreyfanlega og fjölbreytta vinnu eru
mörg tilfelli þar sem vinnan hefur í för
með sér viðvarandi spennu sömu vöðva í
langan tima. Mikið álag er á mjóbakið og
mjaðmir við að ganga um, standa og
halda jafnvægi við aðgerð á skipinu, sem
og við að lyfta og bera hluti í miklum
veltingi. Ofan á þetta bætist síðan kuld-
inn eða ójafnt hitastig sem eykur spenn-
una og álagið til muna. Vinnutarnirnar
eru oftar en ekki margar. Pó svo að reynt
sé að draga fiskinn í skip jafnt og þétt til
að dreifa álaginu sem mest, er það ekki
alltaf mögulegt.
í mörgum tilfellum er skipt urn veiðar-
færi í sömu veiðiferð og þurfa einstak-
lingarnir að breyta um vinnubrögð og
vinnutilhögun 1 kjölfarið. Þetta getur
reynst mönnurn erfitt.
d) Hiti / kuldi.
Til að forðast truflun á svefni er mátulegt
að herbergishiti sé um eða nokkrum
gráðum undir 18 C. Það hefur sýnt sig
að nauðsynlegt er að líkamshiti sé örlítið
undir þvi sem hann er vanur til þess að
einstaklingurinn nái að festa svefn. Að-
stæður um borð í skipi eru oftar en ekki
þær að unnið er við mjög breytilegar að-
stæður hvað þetta snertir. Unnið er úti
tímum saman í hvers kyns veðri og ofan
í köldu lestarrými auk þess sem líkam-
legt álag er mikið.
Svefnklefar eru oft litlir og þröngir
með lítilli loftræstingu. Loftið er því oft
þungt ásamt því að þeir sem því deila
eru að koma inn eftir erfiðisvinnu, og
líkamsstarfsemin í
mikilli brennslu,
sem leiðir til þess
að hitinn í rýminu
hækkar snögglega.
Þessar aðstæður hjá
sjómönnum eru
ekkert ólíkar þeim
aðstæðum sem upp
koma hjá einstak-
lingum sem vinna á
næturvöktum í
mikilli kyrrstöðu,
þreyta ryðst inn í
vökumynstrið og
hætta á slysum er
því talsverð.
Pað cr ehki hœgt að henna ofurþunga dhafnarinnar um að þessi
stingur sér í ðlduna! Ljósmynd Jón Kr Friðgeirsson.
e) Lýsing.
Engar rannsóknir
liggja fyrir, hvorki
hérlendis né erlend-
is, um áhrif lýsingar
á svefn sjómanna
um borð í fiskiskip-
um. I’að sem hefur
verið rannsakað
leiddi í ljós að lýs-
ing hefur sambæri-
leg eða svipuð áhrif á svefn og hávaði.
0 Vaktavinnufyrirkomulag.
Rannsóknir á vaktavinnufyrirkomulagi
hafa beinst að því að skoða mun á 8 tíma
og 12 tíma vöktum. Þær hafa leitt í Ijós
að þó menn upplifi 12 tíma vaktavinnu á
mun jákvæðari hátt, þá eru merkjanlega
fleiri rnistök gerð á síðustu fjórum tim-
um vaktarinnar, þ.e. fyrstu 8 tímarnir
líða svo til átakalaust en undir lokin sést
veruleg fjölgun óhappa og slysa.
Hjá sjómönnum er um að ræða enn
erfiðara fyrirkomulag en það er sex tíma
vaktavinnufyrirkomulagið. í þessu kerfi
verður svefntíminn mun styttri, en á
móti kemur að vinnutíminn er einnig
styttri með góðri hvíld á milli. Oftar en
ekki eru aðstæður þó þannig að sá hópur
sem á að vera í hvíld er ræstur út vegna
mikilla veiða. Það sem líka þarf að taka
til greina er, að einstaklingurinn vinnur í
mjög mikilli óreglu hvað varðar kerfi,
með stuttum fríum á milli veiðiferða, en
flest skipanna eru einungis í um tveggja
daga stoppi í landi í einu. Það ruglar
svefnmynstrið enn frekar, sérstaklega hjá
þeirn sem vinna á skipum sem eru í viku
úti í einu. Undir þessurn kringumstæð-
uin hleðst þreyta fljótt upp í líkamanum,
því hann þarf fimm daga til jafna og
stilla sig af upp á nýtt. Þetta álag er
SJOMANNABLAÐIÐ
Símanúmer blaðsins:
Afgreiösla og áskrift:
587 2619 og 462 2515
Ritstjóri: 868 2159
netfang sgg@mmedia.is
Auglýsingastjóri: 587 4647
Tilkynningaskyldan
Sjómenn!
• Munið að tilkynna breytingar á símanúmerum til
Tilkynningaskyldunar.
• Munið að tilkynna um brottför.
• Sími Tilkynningaskydu íslenskra skipa er 552 3440
Hhl
SLYSRVflRNflFELflGIÐ
LflNDSBJÖRG
Sjómannablaðið Víkingur - 43