Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2004, Blaðsíða 55
Aflaklœmar á Hagbarði á vertíðinni 1948. Efsta röðfrá vinstri: Guðmundur Halldórsson,
Bjarni Porvaldsson, Hclgi Héðinsson, Halldór Bjamason (með kaskeiti), Þórarinn Vigfússon,
framan við Halldór Bjarnason er Þórður Ásgeirsson, við hlið hans Helgi Bjarnason og næstur
honum er Hclgi Ólafsson. Næsta röðfrá vinstri: Jósteinn Finnbogason (með hatt), Haukur
Sigurjónsson, Guðni Jónsson, bak við hann er Gunnar Jónsson og lengst lil hægri cr Ingvi
Hannesson (með hatt).
ræða við I’órarin skipstjóra minn þar
sem við værum nú hér að gera klárt fyrir
síldina. Ég var nokkuð spenntur og hrað-
aði mér því á fund hórarins sent gaf mig
lausan svo ég gæti farið i þessa siglingu.
Ég hélt því næst upp á skrifstofu til Val-
týs og tilkynnti honum jákvætt svar. I
sama mund snaraðist inn á skrifstofuna
stór og fyrirferðarmikill maður, þungur á
brún og alvarlegur mjög. hetta reyndist
vera væntanlegur skipstjóri á Akraborg-
inni, Guðjón Finnbogason. Hann var að
koma að sunnan með flugi en einmitt
þennan morgun hafði fundist flak fiug-
vélarinnar sem fórst í Hestfjalli og á leið-
inni út Eyjafjörð mætti Hagbarður línu-
veiðaranum Atla sem var að koma til Ak-
ureyrar með lík þeirra sem fórust.
Á bak við kotnu Guðjóns skipstjóra
og flugvélarinnar sem fórst var merkileg
saga sem hann sagði mér sjálfur. Þannig
var að hann hafði pantað sér fiugfar til
Akureyrar og var mættur suður á Reykja-
víkurflugvöll þegar hann mundi allt í
einu eftir jrvi að kunningi hans hafði
beðið hann að koma og hafa af sér tal
áður en hann færi norður. Guðjón hætti
því við að fara með vélinni sem var þá i
þann veginn að leggja af stað. Hann tók
leigubíl og ók sem leið lá til Reykjavíkur
á fund kunningjans. Þegar Guðjón birtist
hjá kunningjanum brá honum nokkuð
og segir strax við Guðjón: „Þú varst bú-
inn að koma að hitta mig.” Mundi þá
Guðjón sem var að það var alveg rétt og
skildi ekkert í minnisleysi sínu. Hann
hraðaði sér aftur út á völl en í sama
rnund hóf flugvélin sig til ilugs í síðasta
skipti. Enn einu sinni sannaðist að „ekki
verður feigurn forðað eða ófeigum í hel
komið!” Hver stjórnar?
Degi síðar var endum sleppt og haldið
til Hríseyjar. Aðeins einn hinna nýju
skipsfélaga minna þekkti ég fyrir en það
var Tryggvi Guðmundsson frá Saurbrúar-
gerði á Svalbarðsströnd. Við höfðum ver-
ið saman á skipi áður. Mjög fljótlega
vakti athygli mína ungur maður, Agnar
Þórisson frá Hjalteyri. Agnar var tuttugu
og tveggja ára gamall, röskur og sérstak-
lega ljúfur en einnig myndarpiltur og al-
gjör bindindismaður. Hann féll strax öll-
um um borð vel í geð og áhöfn Akra-
borgar var reyndar undir eins mjög vel
samhent enda þurfti þess við á þrímöstr-
uðu seglskipi. Akraborgina hafði Valtýr,
eins og áður sagði, nýlega keypt frá
Lysekyl í Svíþjóð og hét þá TOVA og var
(sjámöuuuni
bestu jóia og núávskveðjm
oq foökkmn
vuJskiptin
á áúnu
Vagnhöfða 10 - Sími: 567 3175
GSM: 897 5741 - Fax: 587 1226