Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 9

Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 9
NÁTTÚRUFR. 119 fram, að fuglinn þurfi að koma upp, til þess að kyngja fæð- unni, en það er vafasamt, hvort svo er. Til þess að gefa yfirlit yfir mataræði svartfuglanna við Vesturland á sumrin, vel eg eina langvíu, sem eg skaut, sem dæmi. — Kvarnir úr ýmsum fiskisei'Öum úr lang'víu-fóarni. AÖ eins lítill hluti af öllum kvörnunum 1 fóarninu (stækkaö sjö sinnum). 1. 1 kokinu voru 40 þorskfiska-seiði, mestmegnis ýsu-seiði, og vógu þau öll 10,6 gr. 2. Neðst í vélindinu og í kirtlamaganum, voru 43,7 gr. af grá- leitu mauki með rauðum, gyltum og svörtum deplum. Svörtu deplarnir voru augu seiðanna, sem fuglinn hafði neytt, gyltu litarefnin stöfuðu af hinum svonefndu gúanin-krystöllum í húðinni og slímhúðinni, en rauði liturinn stafaði af rauð- átunni, sem fiskilirfurnar höfðu etið. Ekki var unnt að telja, hve mörg fiskseiði voru í maukinu, en eftir fjölda sporð- anna og augnanna, má gera ráð fyrir, að þarna hafi verið leyfar af að minnsta kosti 110 fiskiungum, aðallega þorski og ýsu. 3. í fóarninu voru 4,2 gr. af ýmsum leyfum, sérstaklega kvörn- um, og beinum (eða brjóski) seiðanna. Þarna mátti telja

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.