Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1931, Qupperneq 20

Náttúrufræðingurinn - 1931, Qupperneq 20
130 NÁTTÚRUFR. undan sleðanum, sem Skrælingjar önnuðust um. — Framundan honum er borgarís mikill, og þegar hann nálgast hann, kem- ur allt í einu bjarndýr framundan jakanum, skammt frá mann- inum. Byssu sína hafði hann skilið eftir á sleðanum — sem er óafsakanlegt hugsunarleysi, á þessum slóðum. ,,Nú voru góð ráð dýr“, segir hann. „Dýrið nálgaðist mig, með hausinn hang- andi niður. Það var gamalt, stórvaxið karldýr, og einmitt í því lá mesta hættan. Því þó að bjarndýr flýi manninn venjulega, þá eru þessi gömlu karldýr, sigurvegarar í hverju einvígi, vön því, að vera óþægilega nærgöngul og víkja ekki undan neinu. Enn þá hafði dýrið ekki tekið eftir mér. Eg leysti af mér skíð- in með varfærni, tróð mér inn í sprungu á jakanum, en sökk þar upp á lendar í mjúkan snjó. Nú komu nokkur augnablik, sem munu aldrei líða mér úr minni. Dýrið kom þrammandi og var ekki nema svo sem fimm skref frá mér, staðnæmdist þar við skíðaförin, þefaði rækilega af þeim, reisti hausinn, horfði fram á fjarðarísinn, og sneri sér svo við í áttina til mín. Nú hafði það tekið eftir mér. Eg sá skýrt augun, brún og lítil, er horfðu rannsakandi á mig. Leiftursnöggt greip mig sú hugs- un, að nú ætti eg að stökkva fram úr fylgsni mínu, gera dýr- inu bilt við og reka það þannig á flótta, en til þess þurfti meira hugrekki en eg bjó yfir á þessu augnabliki. Nú sé eg dýrið yf- ir mér — heldur það að eg sé selur? — Loks hættir bangsi að stara á mig, hengir niður hausinn og labbar burtu, rétt eins og eg væri alls ekki til“. STÆRÐ OG ÞYNGD. Hvítabjörninn er líklega stærsta rándýr jarðarinnar, og er hann þó enn meiri að þyngd heldur en hann sýnist eftir stærðinni. Ganglimirnir, hausinn, bolurinn, allt er jafn-mikil- fenglegt. Fullvaxin karldýr verða upp undir 3 metrar á lengd og er sagt að þau verði um 800 kg að þyngd. Kvendýrin eru töluvert minni en karldýrin. Við höfðum ekki tæki til að vigta þau dýr, er við veiddum á Gottu, en þyngdina má nokkuð marka á því, að til þess að draga þau inn á þilfarið höfðum við ,,talíu“, 2 tvískornar blakkir, og drógu 3 menn, en þó var ekki viðlit að draga dýrið upp, er öll þyngdin var komin á loft, með öðru móti en því, að 4. maður „stoppaði við“ sem kallað er; kaðlinum var brugðið undir slá eða tolla, mennirnir þrír drógu sveigju á kaðalinn, en 4. maður dró svo af jafnharðan. — Að eins fitan af einu dýrinu fyllti nærri oliufat. Húðin af 2 karl-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.