Náttúrufræðingurinn - 1931, Page 34
144
náttúrufr.
komizt upj), en eg tel þuð þó víst. Eitt skipti lief eg hitt á að finna ungana
nýkomna úr eggjunum.
I eyju örskammt frá, porkelsey, hefir einnig orpið rauðbrystingur. Man
eg ekki betur en hann yrpi [)á einnig í Miðlangey. Er því hér að rœða um tvo.
I sumar hefir rauöbrystingur ekki orpið neinstaðar svo vitanlegt sé.
Vona þó, að hann hafi ekki yfirgefrð okkur að fullu og öllu.
Skáleyjum, 8. ágúst 1931.
Gísli E. Jóhannesson.
Kynlegír þúfatíttlíngar.
Vorið 1928 fann eg þúfutittlingshreiður í spannardjúpri holu, graíinni af
vatni ofan í viðarholt uppi á hálsi, sem gengur norður af Tunguöxl við mynni
Bleiksmýrardals. í hreiðrinu voru 5 eða 6 dökkleit egg. Eg merkti við hreiðrið
og um það var síðan iðulega vitjað, þegar leið að útungun. Einn daginn, seint
í júní, voru ungarnir komnir úr öllum eggjunum. Þótti mér þá bregða kynlega
við. Tveir af ungunum voru „ljóshærðir“, þar sem hinir voru 'stálgriir. Litur-
inn sást svo greinilega á dúnrákum á vængjalimunum. Svo uxu ungarnir og
þá varð allt glöggara. peir urðu allir fleygir á skömmum tíma. Og allt sumar-
ið sást svo annar þessara tveggja, hvftu smáfugla á flögri kringum bæinn
heima. En hinn livarf tiltölulega fljótt. Mikla athygli veittum við þeim og
voru þeir í engu frábrugðnir venjulegum þúfutittlingum, riema þessu eina
atriði. Um bastarða (kynblendinga) mun þó helzt að ræða. Eða livað annað?
Vökuvöllum við Akureyri, 3. júlí 1931.
Sigurður Kristinn Harpan.
I sambandi við þessar fróðlegu upplýsingar um þúfutittlingana, vil
eg geta þess, að fyrirbrigði það, sem nefnt er í greininni, er nokkuð algengt
meðal fugla og spendýra. Einstaklingarnir, sem ver'ða fyrir þessu, eru alltaf
hvítir, bæði á hár (eð,a fiður) og hörund, og regnbogahimna augans er vana-
lega einnig meira eða minna litarlaus. Fyrirbrigðið stafar af því, að það vant-
ar litarefni (Pigmentum) í slímlag húðarinnar (stratum Malpighii), en af
hverju litarefnið vantar, veit enginn ennþá. Það kemur einnig fyrir við og við
að menn fæðast með mjallahvítt hörund og alhvítt lmr. Fyrirbrigðið hefir
fengið sératakt nafn á vísindamálinu, og nefnist þar albinismus, en einstak-
lingur só, sem verður fyrir því, nefnist albinos. Orðin koma af albus (latína)
og albino (Portugalska), sem bæði þýða hvítur.
A. F.
NÁTTÚRUFRÆÐINGURIKN hvetur alla þá, sem eirihverjar nýjung-
ar hafa úr ríki náttúrunnar, smáar eða stórar, að láta ekki undir höfuð
leggjazt að senda þær útgefendum blaðsins, svo þær geti birzt almenningi
ef þær eru þess virði. Bþaðinu er ekki að eins það mark sett, að vera les-
endunum til fróðleiks, heldur á það einnig að vera markaður fyrir fróð-
leik, sem cf til vil-1 annars myndi glatast. pessi orðsending á erindi ti'l
allra, en ekki sízt til læknanna og dýralæknanna.