Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 59
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
51
23. febrúar, Halldór Þormar, lífeðlisfræðingur: Um bakteríuætUr. Mættir
voru 33.
23. mar/, Tómas Tryggvason, jarðfræðingur: Um jarðfræðikort af nágrenni
Reykjavfkur. Litskuggamyndir fylgdu. Mættir 07.
4. maí, Páll Bergþórsson, veðurfræðingur: Áfangar i sögu veðurfræðinnar.
Erindinu fylgdu skuggamyndir og gerð var tilraun Torricellís. Mættir 20.
11. maí, D. J. Martinoff, stjörnufræðingur frá Moskvu: Um gervitungl
Sovétríkjanna og könnun himingeimsins. Guðmundur Arnlaugsson, mennta-
skólakennari, flutti þýðingu gerða af horvakli Þórarinssyni, lögfræðingi. Er-
indinu fylgdu litskuggamyndir og kvikmynd. Mættir á samkomunni um 130.
26. október, Þorkell Grímsson, fornminjafræðingur: Unt myndlist á ísöld.
Litskuggamyndir fylgdu. Mættir 48.
30. nóvember, Eysteinn Tryggvason, veðurfræðingur: Um jarðskorpuna und-
ir íslandi. Erindinu fylgdu litskuggamyndir. Mættir 57.
Elestir voru samkomugestir um 180, fæstir 20, að meðaltali voru mættir á
samkomu 75 manns, og má sú sókn teljast sæmileg.
Að loknum flutningi erinda voru að jafnaði nokkrum fyrirspurnum beint
til fyrirlesaranna, sem gáfu við þeim greiðleg svör.
Gísli Gestsson, safnvörður, hefur jafnan sýnt félaginu þá sérstöku greiðvikni
að sýna skuggamyndir þær, sem fylgt hafa erindunum. Kann félagið honum
be/tu þakkir fyrir.
Útgáfustarfsemi
Sigurður Pétursson hefur annast ritstjórn Náttúrufræðingsins. Hefur stjórn-
in og ráðið hann áfram ritstjóra tímaritsins þetta ár.
Afgreiðsla og innheimtustörf
Stefán Stefánsson, verzlunarmaður, annaðist eins og að undanförnu af-
greiðslu Náttúrufræðingsins og innhcimtu félagsgjalda. Hann hefur verið
ráðinn áfram til jieirra starfa.
tlm húsnæði félagsins
Eins og kunnugt er, helur félagið um allmörg ár haldið samkomur sínar og
aðalfundi í I. kennslustofu Háskólans. Hefur háskólinn lánað þetta húsnæði
endurgjaldslaust. Félagið aðeins greitt vægt gjald fyrir hreingerningu eftir
samkomurnar. Þennan skilning forráðamanna Háskólans ber að þakka. Þá
er að geta þess, að nú liefur félagið fengið til afnota, eins og til stóð, herbergi
í liúsnæði því, sem keypt liefur verið handa Náttúrugripasafninu. Herbergi
þetta hefur verið innréttað með hyllum, sein hentugar eru til að geyma á upp-
lag Náttúrufræðingsins og skýrslnanna. Hafa nú eigur félagsins flestar verið
fluttar í þetta herbergi. Með þessu hefur ráðist nokkur hót á húsnæðismálum
félagsins.