Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 63

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 63
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN FISKARNIR eftir Bjarna Sæmundsson. 4 Onnur útgáfa með viðauka eftir Jón Jónsson fiskifræðing. Bók þessi fjallar um íslenzka fiska. Hún er tæpar 600 bls. með 250 myndum. í bók þessari er mikill og merkilegur fróðleikur saman kominn, og sá fróðleikur á erindi til margra Islendinga, eigi aðeins fiskimanna og útvegsmanna, heldur allra þeirra, er vilja fræðast um undirstöðuna að þeim atvinnuvegi, sem stendur undir nálega allri gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Fiskarnir hafa lengi verið uppseld bók og mjög eftir henni spurt. Viðtökur þær, er fyrsta útgáfa fékk, voru frá- bærar, bæði af hálfu sérfræðinga og almennings. Nokkur ummæli náttúrufræðinga um Fiskana: „Ágætt rit, mikið að vöxtum, vandað að efni og frá- gangi, fróðleg bók, sem er allt í senn: vísindarit, handbók og alþýðlegt fræðirit.“ Pálmi Hannesson. „Bók þessa má óefað telja meðal hinna merkustu bóka, er birzt hafa á íslenzku liin síðari árin — tímamótarit í íslenzkri fiskifræði.“ Guðm. G. Bárðarson. „Bólc þessi á skilið að komast inn á hvert það heimili, er land á að sjó, á eða vatni, sem fiskur gengur í.“ Magnús Björnsson. „Bók hans (Bjarna Sæmundssonar) um íslenzka fiska er þrekvirlci á sínu sviði, og mega aðrar þjóðir öfunda okk- ur af slíku riti fyrir almenning.“ Jón Jónsson. Verð kr. 145,00 ób., 180,00 í skinnlíki, 230,00 í skinn- bandi. Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs fá 20% afslátt af útsöluverði.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.