Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 64
NAT T Ú R U F R Æ Ð I N G U RINN
’*-------------------------------------------------
H.i. ICitnslcipaié 1 ag íslands.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags Islands, verð-
ur haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík,
föstudaginn 3. júní 1960 og hefst kl. 1.30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfirstand-
andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til
úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31. des.
1959 og efnahagsreikning með athugasemdum endur-
skoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úr-
skurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef
tillögur koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykja-
vík, dagana 30. maí — 1. júní næstk. Menn geta fengið
eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrif-
stofu félagsins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og
afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins
í hendur til skráningar, ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 19. janúar 1960.
STJÓRNIN.
\__________________________________________________^