Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 10

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 10
4 NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN austan Dyngjufjalla. Hraun, sem komin eru upp, eftir að rnyndun Öskju lauk, og }d;í einnig þau, sem runnin eru á síðustu áratug- um, mætti nefna Öskjuhraun (posttektonisk hraun). Lítið er vitað um gos í Dyngjufjöllum á sögulegum tíma fram til 1875, enda liggja fjöllin fjarri alfaraleið inni á reginöræfum. Ólafur Jónsson telur, að þau Trölladyngjugos, sem getið er í forn- um heimiklum, hafi orðið í Dyngjufjöllum, en Herðubreiðar- fjöll, Dyngjufjöll og líklega Trölladyngja munu áður fyrr hafa heitið einu nafni Trölladyngjur. En þó er ekki síður líklegt, að eitthvert Trölladyngjugosanna hafi orðið á Suðurkjálkanum, m. a. á gossprungu, sem skerst gegnum Trölladyngju á Reykjanesi, enda voru gos tíð þar um slóðir á fyrstu öldum fslandsbyggðar og fram undir siðaskipti. I>að voru þó fyrst náttúruhamfarirnar í Öskju 1875, sem beindu athygli leikra og lærðra að Dyngjufjöllum. 2. janúar 1875 varð vart allmikilla jarðhræringa í Mývatnssveit, og daginn eftir sáust eldbjarmar og gosmekkir yfir Dyngjufjöll- um. Um miðjan febrúar gengu fjórir Mývetningar suður til Dyngju- fjalla, en það er um 60 km leið, að huga að eldstöðvunum. Þeir fundu eldvörpin í suðaustanverðri Öskju. Upp úr gígunum lagði gufustróka, en einnig gusu þeir leir og grjóti, líklega líkt og leir- hverinn Hrekkur gerði fyrir síðasta Öskjugos (1961), svo sem síðar getur. Einnig höfðu runnið hraunspýjur frá gígunum. Rétt vestan stærsta gígsins hafði myndazt alldjúpt jarðfall, 10—12 dagsláttur að stærð. Fyrir ferð þeirra Mývetninganna hafði, svo að kunn- ugt sé, aðeins Björn Gunnlaugsson séð niður í Öskju, er hann kom þangað í landmælingaferð í slæmu veðri sumarið 1838. Aðfaranótt hins 29. marz 1875 varð mikið sprengigos í Öskju. Á örfáum klukkustundum geystist gífurlegt magn, líklega 2 km8, af líparítvikri og ösku upp úr gígnum Víti. Gígker þetta er aðeins um 100 m að þvermáli og 50—60 m að dýpt. Hæð gígrimans norð- an og vestan Vítis er aðeins 12—15 m yfir hraunsléttuna í Öskju. Öskumökkinn bar fyrir snörpum vestanvindi yfir Austurland. Kl. 8 að morgni hins 29. náði vikurbakkinn Seyðisfirði og vestur- strönd Noregs um kl. 19 samdægurs. Kl. 10 næsta morgun tók svo að falla aska í Stokkhólmi. Vikurinn lagði 17 jarðir á Jökuldal og Jökuldalsheiði í eyði, flestar um stundarsakir, og stórspillti beit- arlöndum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.