Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 34
24
N ÁT T Ú R U F R Æ ÐIN G U R I N N
en oft sítrónugulur neðst og mjókkar niður. Með
brennandi beizku pipar-bragði. Talinn eitraður.
(Svo eitraður er liann að minnsta kosti ekki, að
óhætt er að smakka á honum. Eitursveppir hafa
margir mjög sterkt bragð).
Fyrst fundinn í Egilsstaðaskógi af P. Larsen
(1922). Vex í flestum skógarleyfum norðanlands
og austan.
Auk þeirra tegunda, senr hér hafa verið nefnd-
ar, hefur fundizt hér Boletus castaneus Fr. Fann
Ostenfeld liann skammt frá Grjótnesi á Sléttu
(um 1900). Hann hefur þó ekki fundizt aftur og
sleppum vér því að lýsa honum hér.
Þá er rétt að geta hér eins pípusvepps, sem kallaður hefur verið
Boletus laevis og er lýst af Eliasi Fries í riti hans Epicrisis. Segist
Fries hafa fengið eintak af svepp þessum hjá Raben greifa (ferð-
aðist um Island 1821). Þessi tegund hefur hins vegar aldrei fundizt
aftur, hvorki hér né erlendis. Páll Larsen telur því enga ástæðu
til að telja þetta sérstaka tegund, hér muni aðeins hafa verið um
afbrigði af Bol. scaber að ræða, sem af tilviljun hafði sléttan staf,
en það einkenni ber helzt á milli. Verður þetta að skoðast sem
Salómonsdómur yfir þessari einstæðu teguncl. Vera má þó, að ekki
séu öll kurl kornin til grafar. Svo sem áður er getið, er kúalubb-
inn afar breytileg tegund og munu mörg afbrigði leynast innan
hans. Þarlnast það allt nánari rannsóknar.
Loks má geta þess, að með áframhaldandi innflutningi barrviða
til landsins er líklegt, að inn muíii flytjast enn nýjar tegundir
pípusveppa, eða séu jafnvel þegar komnar. Vill höfundur þessarar
greinar biðja menn að hafa augun lijá sér í því efni.
5. mynd. Pipar-
sveppur (2/3 nátt-
leg stærð).
HEIMILDARRIT - LITERATUR
Christiansen, M. P. (1941). Studies in the larger Fungi of Iceland. Bot. of
Icel. Vol. III.
Ferdinandsen, C. og 0. Winge (1943). Mykologisk Exkursionsflora.
Gams, Helmut (1953). Kleine Kryptogamenflora v. Mitteleuropa.
Halldórsson, Björn (1783). Grasnytjar.
Larsen, Paul (1931). Fungi of Iceland. Bot. of Icel. Vol. III.
*