Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 24
14
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
13. mynd. Hraunröndin í Öskju sunnan gossprungunnar. Upp af hrauninu
leggur gufu frá bráðnandi snjó, er varð undir hrauninu, þegar það rann yfir.
Lengst til hægri sést gufumökkur frá öðruni stóra leirhvernum. — The lava
south of the volcanic fissure in Askja. The glowing lava clid not melt the
snow in front of it. Hours or days later one saw steam rising from the lava
field. — Ljósm.: I>. E., 28. okt. 1961.
sem þegar var storknað, og hlíða Austurfjalla. Hraun þetta rann
ýmist langar leiðir undir storkinni hraunþekju eða kvíslaðist um
apalhraunsfláka nýja hraunsins (9. mynd).
Gosinu mun hafa lokið í byrjun desember. Þegar Björn Pálsson
flaug yfir eldstöðvarnar 15. des., sást engin glóð lengur í gígunum
eða hrauninu. En um langa hríð mun gufu enn leggja upp tir gíg-
unum.
Samkvæmt mælingum Trausta Einarssonar mun hiti hraunkvik-
unnar í gígunum liafa verið um 1200° C, en það er mun meira en
mældist í Hraungíg Heklu 1947. Þar var hitinn 1000° C, en út í
hrauninu allt að 1150° C.
Allundralega kom það eldsóvönum fyrir sjónir, að glóandi hraun-
jaðrarnir skyldu ekki bræða snjóinn, áður en hraunið rann yfir.
I.íklegt er, að kalt loftið, sem sífellt streymdi að glóandi hraun-