Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 42

Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 42
innar og hjartaskeljarinnar. Og enn hafa þær fundizt á norðlægari slóðum en áður. Merkasti fundur sandskeljarinnar er við Gæsaeyri við Eyjafjörð innanverðan. Og þar voru lifandi eintök af henni 2—3 cm lengri en þau stærstu, sem fundizt hafa við suðurströnd landsins. Og hjartaskelin er að minnsta kosti komin norður til Ö n u ndar fj ar ðar. í þessu sama hefti Náttúrufræðingsins er getið um 2 samloku- tegundir, sem ekki voru kunnar liéðan áður, sem sé bylgjuskel (Mysia undata) og risasnekkju (Thracia devexa). Af fyrr nefndri tegund hefur ein skel fundizt til viðbótar; hún fannst við Vest- mannaeyjar, og var það liægri skel með gati (boruð eftir Natica). Skel þessi var 21 mm á lengd og 19,5 mm á breidd. Að því er risasnekkjuna snertir, þá er þar komið babb í bátinn. Upphaflega liafði ég aðeins vinstri skel til athugunar, þar sem hægri skelin hafði ónýtzt hjá finnanda. Mér var það strax ljóst, að skel þessi var ekki hreinræktuð, þó að það kæmi ekki fram í grein minni. Virtist hún sveima einlivers staðar á milli tveggja náskyldra tegunda: Thracia devexa og Thracia convexa. Var hún mun líkari fyrr nefndri tegund eftir myndum að dæma, en samanburðareintak hafði ég ekki. Þar sem ég var ekki fyllilega ánægður með niðurstöð- ur mínar, ákvað ég að senda þetta hálfa eintak til sérfræðings í nor- rænum skeljum, K. W Ockel- mann, og óskaði þess, að hann segði álit sitt. Vissi ég, að hann þekkti Thracia devexa úr norð- urhöfum og það út í yztu æsar. Svar sérfræðingsins var það, að umrædda skel bæri ekki að telja til T. devexa, heldur til T. con- vexa (mynd 1), en til deilitegund- af henni, sem skírð hefur verið ventricosa. Samkvæmt því er þá vísindanafn tegundarinnar: Thra- cia convexa ventricosa (mynd 2). Ilvorki aðaltegund né deiliteg- und hal'a áður fundizt hér við land. Útbreiðsla þeirra til norðurs nær ekki lengra en að Lófóten í Noregi, en suður á bóginn allt til Miðjarðarhafs. Við strendur Noregs hefur deilitegundin ekki 1. mynd. Thracia convexa. Aðalteg- und í náttúrlegri stærð. (Úr Danmarks Fauna).

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.