Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 3
Náttúrujr. - 32. árgangur
- 2. hefli - 49.-96. síða - lteykjavik, júlí 1962
Jón Eyþórsson:
Sveinn Pálsson
1702 - 25. apríl - 1962
Sveinn Pálsson var fæddur að Steinsstöðum í Skagafirði sunnu-
daginn fyrstan í sumri 1762, sem bar upp á 25. apríl, og andaðist
að Suðurvík í Mýrdal 24. apríl 1840, 78 ára að aldri.
Þegar vér minnumst nú 200 ára fæðingardags Sveins Pálssonar,
er það annars vegar fyrir mikilsverðan skerf, sem hann hefur lagt
til rannsókna á náttúru íslands, dauðri og lifandi, og hins vegar
vegna þess, að hann var meðal fyrstu embættislækna landsins og
vann störf sín af trúmennsku og ósérhlífni, — eins og rómað er í
kvæði Gríms Thomsens, Sveinn lœknir og Kópur, sem margir kann-
ast við. En læknishérað Sveins náði yfir Árness-, Rangárvalla- og
Vestur-Skaftafellssýslu, auk Vestmannaeyja, og hans var vitjað til
sjúkra austan af Djúpavogi og vestan af Seltjarnarnesi. Allar ár á
þessu svæði voru að sjálfsögðu óbrúaðar, og kom sér því vel, að
læknirinn væri ötull vatnamaður og liestar traustir.
Afi Sveins og langafi voru prestar í Goðdölum norður, en faðir
hans bóndi og silfursmiður á Steinsstöðum í Skagafirði. Langa-
langafi Sveins var séra Sveinn Jónsson hinn lærði á Barði í Fljót-
um. Af honum er líka kominn karlleggur Tliorarensensættar, en
Stefánungar eða Stephensensætt af Guðmundi bróður hans. — Þeir
Sveinn og Vigfús Thorarensen sýslumaður á Hlíðarenda voru
fimmmenningar, frá séra Sveini á Barði, og það var talin góð og
gild frændsemi á þeirra tíð.
Móðir Sveins Pálssonar var Guðrún Jónsdóttir Eggertssonar lög-