Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 36
80
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
10. mynd. Kort, er sýnir legu Sandhryggs og Grjótlnyggs. Brotnu línurnar
sýna lauslega hugsanlega legu jökuljaðars í þann tíma, er þessir ásar voru að
myndast. Kortið sýnir einnig misgengislínur Brekkna-sigdalsins. — Map shoiuing
llic location of the eskers Sandhryggur and Grjóthryggur. Dash-lines indicate
hypothetical ice border at tlie lirne when these eskers xucre formed. The fnult
lines of the Brekhur graben are also schematically shown.
um 90 þús. Má telja, að þessir tveir dsar tryggi að verulegu leyti
steypuefni til hugsanlegra virkjunarframkvæmda í Jökulsá.
Um myndun þessara malarása skal ekki fjölyrt hér. Eins og sjá
má af kortskissunni (10. mynd), geri ég ráð fyrir, að Sandhryggur
(það nafn nota ég um ásinn eins og hann leggur sig) hafi myndazt,
er meginjökull síðasta jökulskeiðs hopaði af landssvæðinu suðaust-
ur af Eilífsvatni og myndaði uppistöðulón í krikanum milli Há-
ganga og Grjótháls. Land er þarna mjög flatt, dálítið hallandi til
norðurs, og hefur verið enn sléttara en nú, áður en Brekknadal-
sigið myndaðist, en það tel ég að miklu eða öllu leyti yngra en
malarásinn. A þeim hluta Sandliryggs, sem liggur yfir dalsigio og