Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 39
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
83
is found on the inland platean NF of the Mývatn area, in about 360 m
heiglit above sea level. (Figs. 7, 8, 10 and II). Its name is Sandhryggur, its
total lengtli is nearly 6 km and its max, heigln about 12 m. This esker was
probably formed in a lake dammed up by the receding inland ice in the
corner between the móberg mountain Hágöng, and the interglacial shield-
volcano Grjótháls (cf. the map Fig 10). This esker contains about 300 000
m3 of sand and gravel and will be of economic importance when the river
Jökulsá á Fjöllum will be harnassed.
A smaller esker, Grjótháls, further east is possibly engorged („slukás").
Further study of the ice recession in the area between Mývatn and Dcttifoss
is highly desireable.
Guðmundur Kjartansson:
Jökulminjar á Hálsum milli Berufjarðar
og Hamarsfjarðar
Athugasemd við grein próf. Trausta Einarssonar
í síðasta hefti Náttúrufræðingsins segir prófessor Trausti Ein-
arsson frá athugunum sínum á verksummerkjum eftir jökla á síð-
asta jökulskeiði hinnar kvarteru ísaldar (T. E. 1962).
Fyrri hluti greinarinnar fjallar um rannsóknir höfundar í Eyja-
firði og nágrenni, og er sá hluti úrdráttur úr gagnmerkri ritgerð, er
liann hefur áður birt á ensku um það efni (T. E. 1959). Við rann-
sóknir Trausta í Eyjafirði og niðurstöður hans um jöklafar á þeim
hjara hef ég ekkert að athuga og engu að bæta. Ég hef sjálfur snuðr-
að þar í jökulminjum nokkra daga, aðallega á Vaðlaheiði sumarið
1946, og allar athuganir, sem ég gerði, eru í samræmi við athugan-
ir T. E. og styðja niðurstöður hans um þykkt og útbreiðslu síðustu
, ísaldarjökla, eins og þeir urðu mestir á þessum hjara.
Og þó skal þess getið — til að sýna einhvern lit á gagnrýni — að
ég teldi varlegra að kalla niðurstöðu T. E. lágmark um stærð jökl-
anna (liámark um stærð jökullausu svæðanna). Vöntun jökulminja
á takmörkuðu svæði gefur að vísu í skyn, en sannar ekki, að það