Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 49
NÁTTÚ RUFRÆÐ INGURINN
93
Trausti Einursson:
Nokkur orð um íslaus svæði
Ritstjóri Náttúrufræðingsins hefur gefið mér kost á að bæta
nokkrum orðum við athugasemd Guðmundar Kiartanssonar, sem
hér fer á undan. Ég vil gjarnan nota tækifærið til þess að láta í ljós
ánægju mína yf'ir þessari ágætu grein G. K. og jrakka honum vinsam-
leg ummæli um greinar mínar, senr hann vitnar í. Guðmundur ger--
ir ljósa grein fyrir skoðanamun okkar og er þar litlu við að bæta.
Hins vegar virðist mér rétt, að ég skýri eitt atriði í grein minni urn
íslaust svæði á Austurlandi nokkru nánar og gæti þá skoðanamunur
okkar komið enn betur í ljós. í greininni segir: „Að hin rnikta ójöfn-
un landsins (þ. e. á Búlandsnesi) hefði getað orðið eftir ísöld er and-
stætt reynslu, enda í ósamræmi við tilveru hins lítt eydda ísheflaða
lands skannnt frá“ (bls. 28). Það sem ég hafði hér í huga í fyrri hluta
setningarinnar voru t. d. hinir alkunnu ísfáguðu og rákuðu grágrýt-
isfletir neðan fornra sjávarmarka (43 m) í nágrenni Reykjavíkur,
lieflaðar blágrýtisklappir í sj<» fram við Eyjafjörð, ísrákun nyrzt á
Melrakkasléttu, senr G. K. hafði einmitt sagt mér frá, og mörg önn-
ur dæmi. Þegar G. K. segir, að „neðan við . . efstu sjávarmörk hef-
ur sjórinn máð brott flestar jökulminjar, Jrar á meðal jökulrákir" og
að jretta eigi við „um allt Jrað undirlendi á íslandi, sem lá óvarið
fyrir öldum úthafsins“, þá er ljóst, að við gerum mismikið úr eyð-
ingu af völdurn sjávar — og það ræður miklu um þær ályktanir, sem
við drögum hvor um sig. Hjá mér hefur sú skoðun styrkst æ nreir í
seinni tíð, að sjórinn hafi unnið lítið eyðingarstarf á þeim tíma,
er liann stóð hátt í lok ísaldar, og þegar í ljós kemur mikil eyðing
á vissum annesjum, komi nrjög til greina, að þau hafi verið íslaus
á síðasta jökulskeiði. Það á við um Búlandsnes. Samkvæmt skoðun
G. K. ættu holtin í Flóa og Ölfusi að vera sambærileg við Búlands-
nes, en mér virðist munurinn á landslagi þó talsverður.
Ályktun G. K. út frá ísrákunum, senr hann hefur fundið á Háls-
nm, liggur beint við. Að rákirnar séu eldri en frá síðustu ísöld er