Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 50
94 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ólíklegt, eins og G. K. sýnir fram á. Hins vegar er ef til vill ekki loku fyrir það skotið, að þær séu verk staðbundins jökuls frá Bú- landsdal. Eldri rákirnar (stefna á Papey) gætu eðlilega stafað frá slíkurn jökli, og ef Berufjarðarjökull hefði nokkru síðar gengið spöl- korn lengra fram en ég áætlaði, og verið nokkuð þykkur fremst, hefði liann getað sveigt Búlandsjökul þannig að liann grópaði eldri rákirnar. Með þetta og liina miklu eyðingu á Búlandsnesi í huga sýnist mér rétt að láta það í bili liggja milli hluta hvor okkar Guð- mundar hafi komizt nær hinu rétta um íslaus svæði á Austurlandi á síðustu ísöld. „Tigurló“. Snemma í ágúst 1939 sá ég einkennilega kónguló sitja í vef sín- um í Skaftáreldahrauni, skammt frá Orustuhóli. Var hún næsta ólík fjalla- eða holtakóngulónum, sem algengar eru ndrðanlands. Þessi skaftfellska var mun stærri og mjög sérkennileg á litinn, þver- rákótt, einkum á fótum, svört og grágul með málmgljáa. Þverrákir og dílar á baki. Virtist mér þetta eiginlega tígrisdýrslitur og kall- aði kvikindið tígurló. — Síðan leið og beið til sumarsins 1948. Þá rakst ég á sams konar kóngulær, sem áttu sér stóra vefi í berg- rifum í Hrossadal ofan við Hólagerði í Fáskrúðsfirði. Fór nú að svipast betur um og fann víða tígurlær bæði í kjarri og klettum, t. d. á Gestsstöðum, Kolfreyjustað og í Tungu. Voru krakkar hálf- lirædd við þær; þóttu þær stórar og gassalegar. Síðan hef ég séð tígurlærnar víða á Austurlandi, þ. e. í Berufirði, Álftafirði, Stöðv- arfirði, Breiðdal, Fljótsdal, Mjóafirði, Seyðisfirði, Hellisfirði og Loðmundarfirði. Einnig að Hoffelli og Hrollaugshólum í Horna- firði. Virðast þær allalgengar á Austfjörðum. Ég sendi eintök úr Breiðdal til rannsókna í Kaupmannahöfn. Reyndist tegundin vera það, sem Danir kalla „krosskónguló", Araneus eða Epeira diade-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.