Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
95
matus. Mynda ljósleitir blettir kross ot’an á afturbolnum, en mér
virðast rákirnar mun gleggra einkenni. Til eru og skyldar tegundir,
sumar fundnar hér á landi.
Norðan lands hef ég séð tígurlær á Mælifelli og Skarðsá í Skaga-
lirði, Leyningshólum í Eyjafirði og á Kálfaströnd við Mývatn.
Vestan lands á Rauðamel, Hreðavatni, í grennd við Hvítárbrú og
í Hvalíjarðarbotni. Sunnan lands er tígurlóin sums staðar svo al-
geng, að surnir Sunnlendingar kalla hana „sína kónguló“. En
fróðlegt væri að frétta, hvort margir ltafa séð hana norðan lands.
Tígurlærnar gera stóran, hjóllaga vef, t. d. rnilli greina eða yfir
sprungur og læki. Láta þær stundum vindinn bera fyrsta þráðinn
yfir; kippa svo í til að vita, hvort þráðurinn hafi l’estst örugglega
og festa hann að því búnu sín megin. Þá er komin silkibrú yfir
lækinn eða sprunguna, og tígurlóin getur farið að spinna vefinn.
Oft lætur hún sig fyrst síga niður til að festa „atkerisþráð" að
neðan, svo að allt sé öruggt. Ef stór fluga festist í vefnum, spinnur
kóngulóin þéttan, livítan silkivef utan um hana — það er eins konar
fjötur. — Stundum geymir kóngulóin bráðina þannig bundna lif-
andi, svo að hún skemmist ekki, dögum saman.
Síðsumars korna karlkóngulærnar í bónorðsför. Karlarnir eru
miklu minni en kvenkóngulóin — og hræddir við reiði hennar.
Nálgast karldýrið venjulega hina útvöldu með mestu gætni; hristir
kannski fyrst vefinn, sem hún situr í, ofurlítið til að gera vart við
sig og vita, hvort hún sé í góðu skapi. Ef svo virðist klifrar karlinn
upp í vefinn til hennar, en hefur þó um sig silkiþráð til vonar
og vara, til þess að geta látið sígast örskjótt til jarðar, ef henni
ekki líkar við hann. Fyrir kemur nefnilega að kerlingin ræðst á
biðilinn og etur hann upp til agna! En skömmu eftir vel heppnaða
heimsókn tekur kvenkóngulóin að þrútna og verður að lokum
mjög þung á sér. Hún spinnur gulan, hálfkúlulaga hjúp utan um
eggin og kemur honum fyrir í sprungu, eða t. d. undir berki og
deyr skömmu síðar. Á vorin klekjast ungar úr eggjunum.
Kóngulærnar eru merkileg dýr. Silki þeirra er hæft til velnaðar,
en þykir of dýrt. Margar kóngulóartegundir eru til hér á landi.
Þekkja flestir húsakóngulóna og hafa séð vef hennar — hégómann
— innanhúss og líka ungana — dordingulinn eða fiskikarlinn, sem
lætur sig síga niður í þræði og getur fljótt lesið sig upp aftur.
Ingólfur DavitSsson.