Náttúrufræðingurinn - 1963, Blaðsíða 10
4
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1. mynd. Gróðursvæði sunnan jökla um landnám. — Map of Iceland, showing
vegetated areas on the south highland at the time of settlement.
ið var í þann mund að verða svo uppblásið á því svæði, að varla hef-
ur þótt reiðfært þar um. Er óeðlilegra, að hræðsla við svipi Reyni-
staðabræðra hafi meinað mönnum umferðina um gamla veginn.
Uppblásturinn hefur nú eytt meginhluta þess gróðurlendis, sem
legið hefur milli Langjökuls og Hofsjökuls og ógnar nú síðustu
gróðurleifunum við Hvítárvatn.
Þurrlendisriminn austur af Hvítárnesi heitir Tjarnheiði. Bendir
nafnið til þess, að þar hafi verið heiðarland með tjörnum. Nú er
heiðin örfoka, nema þessi rimi, og sést þar nú engin tjörn lengur,
því að allt vatn hripar niður úr gróðurlausum melunum.
Efstu melkollar á Kili hafa sennilega löngum verið auðir, en
uppblástur jafnvel byrjað frekar þar, sem skógur var fyrir, eða á
mörkum skógar og graslendis og landeyðingin síðan unnið sig
niður eftir skóglendinu. Við áfokið á gróðurjaðarinn þykknar jarð-
vegurinn ört, og reynist erfitt fyrir jurtir, sem vaxa á þeim jaðri,