Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 21

Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 15 3. mynd. Gabbrómolar i basalti. Gígaröðin við Undirhlíðar. — Inclusions in basalt, fig. 2. landi, Portúgal, Nýja Sjálandi, Japan, Marokko, Hawaii, Alaska, Mexikó, Bandaríkjunum, Jan Mayen og víðar. Jarðfræðinga greinir á um uppruna ólivínhnyðlinga. Telja sumir þá vera myndaða í hrauninu sjálfu, en aðrir, að þeir séu molar úr lagi af ólivínauðugu bergi, hinu svo nefnda perídótítlagi, sem talið er að liggi um jörð alla á um 60 km dýpi. Hafi þeir brotnað úr þessu lagi og borizt upp á yfirborð jarðar. Varðandi ólivínhnyðlinginn frá Ólafsvík er þess að geta, að þar er aðeins um einn einasta að ræða, og ekkert er vitað um, hvort mikið er þar til af þess konar myndunum eða ekki. Á meðan það er ekki vitað, er ekki hægt að draga neinar ályktanir af fundinum, en þar sem þetta er eini ólivínhnyðlingurinn, sem fundizt hefur hér á landi, svo að vitað sé, þótti rétt að athuga hann nánar og geta hans hér, þó að ekki væri nema til þess að vekja á honum athygli. Steinninn, sem hann er í, er 7 X 4 X 3 cm að stærð, en sjálfur er hnyðlingurinn um 4 X 2,5 cm. Steinninn er úr fremur fínkorn- óttu ólivínbasalti með nokkru af allt að 0,5 cm stórum ólivín- kristöllum innan um grunnmassann. Svo virðist, sem hnyðlingur- inn hafi orðið fyrir þrýstingi, en það er eitt af einkennum ólivín- hnyðlinga. Kristallarnir eru pressaðir eða flattir út. Séð með ber-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.