Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 24

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 24
18 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Hér ber þó að geta þess, að enn þá hefur ekki farið fram full- komin bergfræðileg rannsókn á myndunum þessum. Veldur því bæði skortur á tíma og tækjum. Verður það því að bíða enn um sinn. Lítilsháttar athuganir hafa þó verið gerðar á samansetningu ein- stakra mínerala í hnyðlingunum annars vegar og í hrauninu hins vegar. Sem dæmi má nefna, að ljósbrot plagíóklasanna í hnyðling- um úr Hólmshrauni II reyndist nDZ 1,570—1,577, en það er sam- kvæmt Tröger og Moorhouse (op. cit.) An 65—An 77, þ. e. a. s. labradorít og bytónít. Ljósbrot í kristöllum úr hrauninu sjálfu reyndist nDz 1,566—1,569, þ. e. An 58—An 63. Ennfremur hefur komið í ljós, að „zonering“ í plagíóklasi er mjög venjuleg í hrauninu, en virðist ekki koma fyrir í plagíóklasi hnyðlinganna. Sama gildir um stundaglas „struktur" í pyroxeni. Allir þeir gabbróxenolitar, sem ég hingað til hef athugað, eru hver öðrum svo líkir að gerð, að full ástæða virðist til að álykta, að þeir muni komnir úr einu og sama berglagi eða a. m. k. úr bergi, sem er af sömu rótum runnið. Tafla I gefur nokkra hugmynd um þetta. TAFLA I. 1 2 3 4 5 6 Plagíóklas .... 75,2 77,6 76,4 70,3 73,5 74,3 Pyroxen .... 24,3 22,2 22,2 26,0 23,4 22,6 Ólivín 0,2 0,2 0,0 3,5 3,1 U Málmur 0,3 0,0 1,4 0,2 0,0 0,0 Iddingsit*)............ 2,0 Taflan sýnir rúmmáls %. Sýnishornin eru frá eftirtöldum stöð- um: 1. Blikalónsey, 2. Þjórsárhraun við Hjálp, 3. Hetta á Sveiflu- hálsi, 4. Hólmshraun II við Lækjarbotna, 5. Norðurendi Sveiflu- háls og 6. Hauganes. Til samanburðar má nefna, að sams konar athugun á berginu í Hólmshrauni II sýndi: Plagíóklas 44,5, pyroxen 43,2, ólivín 7,6, málmur 2,1, gler 2,6. Þess má geta, að í hverri þunnsneið voru taldir 1000—1600 púnktar. ) Myndbreytt ólivín.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.