Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 30
24 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Báðar hafa tegundir þessar blóðrauðan hatt og hvít blöð, en eru þó harla ólíkar. Sú fyrrnefnda, berserkjasveppurinn, vex eingöngu í skógum og sprettur mjög seint á árinu og í sumum árum senni- lega alls ekki. Þessi sveppur er svo auðþekktur og alkunnur erlend- is, að ólíklegt er að Eggert hefði ekki kunnað að nefna hann sínu rétta nafni, ef hann hefði séð hann. Að berserkjasveppurinn er eitraður hefur lengi verið vitað, og því útilokað að hann hafi verið notaður sem matsveppur. Þá finnst berserkjasveppurinn ekki hér á landi fyrr en á allra síðustu árum, og bendir það til þess að h'tið hafi borið á honum hér. Loks er berserkjasveppurinn með greinilegum hring (kraga), en á það er hvergi minnst í lýsingu Eggerts. Að þessu öllu athuguðu finnst mér afar ósennilegt eða nærri útilokað, að nafnið reyðikúla hafi nokkru sinni verið notað urn þennan svepp. Er þá að atliuga hina tegundina, sem sé Russula alpina. Þetta er fremur smávaxin svepptegund, sem hefur blóðrauðan, hvelfdan, dældaðan hatt, og snjóhvít blöð og staf. Hún er algeng um land allt og vex einmitt oft á mosaþembum (Mose-Bakker, svo þýtt af Steind. Steindórssyni), eða þar sem ekki er mjög mikið gras. Lýsing Eggerts á reyðikúlunni á svo vel við þessa tegund, að ég tel ekkert vafamál, að þetta sé einmitt hún. Rétt er að geta þess, að þessi skoðun hefur komið fram áður, eða hjá Rostrup, í riti hans um íslenzka sveppi 1885. Björn Halldórsson lýsir einnig reyðikúlunni, en þar sem sú lýs- ing á eingöngu við hinn eiginlega ætisvepp (Psalliota campestris) tel ég hana ómerka. Lengi mun hafa tíðkazt að telja reyðikúluna til tegundarinnar Russula emetica Fr., en hún er algeng víða um Evrópu og vex einkum í mýrlendum furuskógum. Hún hefur það orð á sér að vera eitruð. Þannig getur J. Vahl um Agaricus emeticus í skrá um íslenzkar plöntur, sem prentuð var með ferðabók Gaimards 1840. Er þar vafalaust átt við reyðikúluna. Af öðrum heimildum um reyðikúluna hér á landi má nefna óprentað handrit að Flora Islandica eftir Ólaf Davíðsson. Þar er getið um Russula emetica Fr., sem er fundin við Heiðarhús (í Eyja- firði) af Stefáni Stefánssyni.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.