Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
27
2. mynd. Russula alpina í maríuslakksdæld (Alchemilletum).
Foto: Helgi Hallgrímsson.
Aðaldal, og þá einkum þar sem gras er lagt, í harðlendi, við götur,
eða á mosaþembum.
Tegundir a£ kyninu Russula eru langElestar rótarsveppir (mykor-
rhizusveppir) og o£t fastbundnar vissum tegundum trjáa eða runna.
Einnig hér á landi eru margir algengir skógsveppir a£ þessu kyni.
(Russula delica, foetens, xerampelina, claroflava, aeruginea, gracil-
lima o. fl.j. Ekki verður séð, að reyðikúlan sé bundin neinni sér-
stakri tegund blómjurta, enda virðist hún geta vaxið í margs konar
gróðurlendi. Eins og áður er getið, hittist reyðikúlan þó mjög oft
með maríustakk (Alchemilla vestita) og kornsúru (Polygonum vivi-
parum). Reyndar hefur kornsúran svo alhliða útbreiðslu, að sjald-
an mun reyðikúlan hittast án hennar. Kornsúran er ein þeirra blóm-
jurta sem að jafnaði hefur svepprót, og mætti því geta sér til um
að samband væri milli þessarra tveggja tegunda.
Russula-kynið er vel aðgreint meðal blaðsveppanna, vegna hinn-
ar meyru gerðar holdsins, sem mylst líkt og ostur, ef það er kramið,
en klofnar ekki í trefjar eins og hold flestra annarra sveppa. Vaxtar-
lagið er yfirleitt mjög líkt. Þetta eru stuttir og digrir sveppir og