Náttúrufræðingurinn - 1963, Síða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
31
fellur í gljúfragili. Þarna suðvestan árinnar í landareign Þverár
og Jódísarstaða standa á talsverðu svæði birkihríslur 2—3 m á hæð
og gulvíðirunnar í gilinu. Teygja þær hæstu toppana upp af kletta-
stöllunum upp fyrir gilbarmana. Kemst sauðfé varla að þeim.
Mest er um birkið gegnt skógræktargirðingunni, en hríslur á
stangli sjást neðar og bjarkabeltið nær einnig lengra upp með
ánni, nokkurn veginn á móts við bæinn Garðsá. Ofar er betur
kindagengt í gilið og allt birki eytt þar af sauðfé. í mel og móa-
brekku (ögn fjær gilinu), ofan við stóru birkihríslurnar, sést urmull
smárra birkiplantna. Þar tók Sigurgeir birkiplönturnar og öspina
óvart með. Sauðféð bítur smáhríslurnar jafnóðum og þær vaxa úr
grasi, og öspin bítst á undan birkinu, segja Norðmenn. Ekki fann
ég öspina, en vel getur hún samt leynzt þarna. Er raunar tilviljun,
ef örsmá asparplanta finnst innan um birkið. Þyrfti raunar að
girða gilið og gilbrekkuna sem fyrst. Mundi þá öspin bráðlega
koma í ljós, ef hún leynist þarna ennþá. En hvernig stendur á ösp-
inni í gilinu? Mjög ólíklegt er, að hún hafi verið flutt þangað.
Bæjarnafnið Espihóll í Eyjafirði bendir til þess, að fyrrum hafi
ösp vaxið á þessum slóðum. Landnámsmenn þekktu öspina vel
frá heimkynnum sínum í Noregi. Vel getur ösp hafa vaxið í Garðs-
árgili frá ómunatíð. Ekkert er þó hægt að fullyrða um þetta að
svo stöddu. Blæösp er áður fundin að Garði í Fnjóskadal og á fjór-
um stöðum á Austurlandi. Getur hún vel leynzt víðar.
Við Djúp.
Síðari hluta ágúst ferðaðist ég nokkuð um Vestfirði, einkum við
sunnanvert ísafjarðardjúp.
í Hvítanesi við Skötufjörð hefur lækjasteinbrjótur lengi vaxið
í kálgarði og við gamalt brunnhús, hinn þroskalegasti. Annars vex
hann helzt til fjalla. Skógarkerfill (Anthriscus silvestris) vex skammt
frá bænum. Hefur sennilega borizt með grasfræi. Gullstör (Carex
serotina) vex hér og hvar á nesoddanum, utan við Hvítanes. Einnig
að Eyri við Skötufjörð og í grennd við Strandsel. Keldustör (Carex
magellanica) vex í landi Hvítaness í Hestfirði, einkum ofan við
Bolaskóg. Einnig að Eyri í Skötufirði, í Ögri og að Hrafnabjörg-
um og víðar í Laugardal. Sums staðar er mikið um hana. Ofan við
Bolaskóg í Hestfirði fann ég einkennilega stör í litlum mýrabletti
á hjalla uppi við fjallið, beint upp af Hesteyri (og gegnt bænum