Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 47

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 47
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 41 Sitt af hverju Um aldur Nesjahrauns í Grafningi. Nýlega fékk ég í hendur niðurstöðu a£ C14-aldursákvörðun á gróðurleifum, sem mikið finnst af undir gjallgígunum norðan við Nesjavelli. Hér er um plöntur að ræða, sem hafa kaffærzt í heit- um gosefnum og kolazt. Má glöggt sjá, hversu greinóttir stofnar kvíslast um gjallið næst undirlagi þess, sem er mold. Aldursákvörðunin gefur því beinlínis til kynna aldur gossins, að svo miklu leyti sem hún nær. Gróðurleifarnar reyndust vera 1880 ± 65 ára gamlar; þ. e. gosið hefur átt sér stað í kringum árið 80 e. Kr. Próf. Schwarzbach frá Köln sá um að koma sýnishorninu til dr. Múnnich, Heidelberg, sem gerði aldursákvörðunina. Þökk sé þeim. í Hellisheiðar-ritgerð sinni gizkar Þorleifur Einarsson á, að Hellisheiðarhraun III muni vera 1500—2000 ára. En gossprungan vestan Nesjavalladalsins er í tektónisku framhaldi gossprungunnar, sem það hraun rann frá. Þess er rétt að geta, að Hagavíkurhraun, sem hefur runnið frá gossprungu austan megin í þessum sama dal, er eldra. ☆ Das Alter des Ausbruches voit Nesjahraun, SW-Island, wurde nacli der C14- Methodc bestimmt. Es liandelt sich um eine unmittelbare Datierung des Ausbruches, da Holzreste, die von clen noch lieissen Schlacken am Rande eines Kraters begraben wurden, fur die Analyse verwendet wurden. Das Alter erwies sich als 1880 ±65 Jahre, so dass sich der Ausbruch um das Jahr 80 n. Chr. ereignet hat. Herrn Dr. Miinnich, Heidelberg, der die Analyse maclite, und Ilerrn Prof. Schwarzbach, Köln, der die Probc an ihn vermittelte, gebiihrt ein besonderer Dank. Kristján Sœmundsson. Leiðréttingar. lilóðþörungar, Náttúrufr. 3. liefti 1962. lils. 136, neðsta lína; konos les kinos Bls. 137, undir myndinni; vaxtaform les vaxtarform — sama síða, önnur lína að neðan; Herst les Herbst. Getið tveggja slimsveppa, Náttúrufr. 4. hefti 1960. Bls. 192, 12. lína að neð- an; Fnjóskadal les Fljótsdal.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.