Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
45
son. Var Einar endurkjörinn, en Ingvar baðst undan endurkjöri, og var í
lians stað kjörinn Jakob Magnússon, dr. rer. nat.
Að tillögu féiagsstjórnar var gerð sú lagabreyting, að árstillag var hækkað
í kr. 80,00 og árlegt gjald þeirra, sem gerðust ævifélagar fyrir 1952, fyrir
Náttúrufræðinginn var hækkað í kr. 60,00.
Samkomur
Reglulegar samkomur, sex að tölu, voru haldnar í Háskólanum síðasta
mánudag hvers vetrarmánaðar nema desember. Ræðumenn og ræðuefni var
sem hér segir:
Janúar. Þorleifur Einarsson: Vitnisburður frjógreiningar um gróður og
veðurfar á íslandi frá ísaldarlokum.
Febrúar. Sigurður Þórarinsson: Frá Dyngjufjöllum og síðasta Öskjugosi.
Marz. Örnólfur Thorlacius: Um frumdýr.
April. Guðmundur Pálmason: Um hita í borholum á íslandi.
Oktúber. Sturla Friðriksson: Úr gróðursögu íslands og uppgræðsla öræfanna.
Nóvember. Stefán Aðalsteinsson: Litaerfðir sauðfjár.
Skuggamyndir voru sýndar með öllum erindunum. Á eftir flestum þeirra
komu fram fyrirspurnir eða athugasemdir frá fundarmönnum og urðu af því
stundum fjörugar umræður. — Fundarsókn var góð, 86 manns að meðaltali.
FræSsluferðir
Þrjár fræðsluferðir voru farnar á sumrinu, tvær stuttar síðdegisferðir og ein
löng þriggja daga ferð.
Fyrri slutta íerðin var farin á uppstigningardag 31. maí. Var ekið suður
undir Vatnsskarð á Krýsuvíkurvegi, gengið þaðan um Undirhlíðar til Kaldár-
sels og ekið aftur til Reykjavíkur. Einkum var hugað að landslagi og jarð-
myndunum. Þátttakendur voru 73, fararstjóri og leiðbeinandi Guðmundur
Kjartansson.
Síðari stutta ferðin var farin sunnudaginn 1. júlí til gróðurskoðunar og
grasatínslu suður að Ástjörn við Hafnarfjörð. Þátttakendur um 80. Leiðbein-
endur voru Eyþór Einarsson, Ingimar Óskarsson og Ingólfur Davíðsson.
Langa ferðin stóð yfir dagana 17.—19. ágúst, lagt upp föstudagsmorgun og
komið aftur sunnudagskvöld. Ekið var sem leið liggur austur sveitir um Árnes-
sýslu, Rangárvallasýslu og V.-Skaftafellssýslu að Skaftá hjá Skaftárdal og heim
aftur Landmannaleið. Náttstaðir voru við Skaftá og í Landmannalaugum, og
var gist í tjöldum. Nokkrir útúrkrókar voru farnir frá þessari leið, t. d. ekið
að Hjörleifshöfða og gengið á hann og gengið á fjöll upp af Landmanna-
laugum.
í þessari ferð voru fyrst og fremst skoðuð margs konar jarðfræðifyrirbæri,
enda enginn hörgull á þeim á leiðinni, en einnig var liugað að gróðri og
dýralífi. Leiðbeinendur voru: jarðfræðingarnir Guðmundur Kjartansson, Jón