Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Bólusótt á Íslandi
Ætla mætti að fjarlægð íslands frá
öðrum og fjölmennari löndum hafi
veitt vörn gegn skæðum farsóttum í
aldanna rás. Því fór þó víðs fjarri.
Mikilvæg ástæða fyrir skaðsemi far-
sóttanna var fámennið hér á landi.
Þegar farsótt barst til landsins fjar-
aði hún út þegar ekki var eftir nóg
af næmu fólki til að viðhalda henni.
Stopular samgöngur við landið
leiddu svo til þess að áratugir gátu
liðið þar til næsta sótt reið yfir. Kyn-
slóðin sem vaxið hafði úr grasi frá
síðustu farsótt hafði því ekkert
ónæmi fyrir sjúkdómnum. í fjöl-
mennari samfélögum í Evrópu varð
sjúkdómurinn landlægur og varð
þar með fyrst og fremst barnasjúk-
dómur vegna þess að þeir sem lifðu
bólusótt af fengu langvarandi
ónæmi og barnsfæðingar voru
nógu margar til að sjá sýklinum
fyrir næmum einstaklingum. Um
bólusóttarfaraldur þann sem gekk á
íslandi 1707-1709 og nefndur var
Stórubólu eru varðveittar ítarlegri
heimildir en um nokkurn annan
slíkan faraldur hér á landi.1 Hann er
sá fyrsti sem hægt er að meta í dán-
artölum, bæði sem hlutfall af íbúa-
fjölda og miðað við aldur. Astæðan
var manntalið sem tekið var 1703 á
íslandi og er elsta varðveitta mann-
talið í heiminum sem nær til heillar
þjóðar. Þá hafa varðveist upplýs-
ingar um fjölda þeirra sem dóu af
völdum Stórubólu víða á landinu.
Bólusóttarfaraldrar fyrir þann tíma
voru trúlega sumir afar mannskæð-
ir, einkum ef margir áratugir liðu
milli faraldra. Þótt íslensku annál-
arnir hafi ekki verið margorðir má í
þeim sjá vísbendingar um það, en
elstu heimildir um bólusótt eru frá
13. öld. Faraldrarnir voru stundum
nefndir „bólan mikla" eða „mikil
bóla" og orðalagið „manndauði
mikill" kemur oft fyrir. Þessir tíðu
bólusóttarfaraldrar hafa ugglaust
átt veigamikinn þátt í að grafa und-
an innviðum þjóðarinnar með því
fella stóran hluta ungs fólks, sem
var atvinnulífinu hvað nauðsynleg-
ast og stóð jafnframt fyrir barneign-
um. Hliðstæða í samtímanum er al-
næmisfaraldurinn í Afríku sunnan
Sahara.
I þessu hefti Náttúrufræðingsins
er birt athyglisverð grein eftir Örn
Ólafsson stærðfræðing þar sem
hann leitast við að skýra misjafnt
dánarhlutfall í Stórubólu eftir
hreppum með mismunandi
ónæmi. Með því að beita faralds-
fræði og líftölfræði varpar Örn ljósi
á sögulegt álitamál sem lýtur að því
hvort takmarkaður bólusóttarfar-
aldur hafi gengið hér á landi
1670-1672, en Sigurjón Jónsson
taldi að svo hafi ekki verið og hall-
ast að því að þá hafi hlaupabóla
gengið.2 Síðasti bólusóttarfaraldur
fyrir Stórubólu hafi því gengið
1655-1658, þ.e. hálfri öld fyrr, og
það skýri alvarlegar afleiðingar
Stórubólu. Jón Steffensen færði rök
fyrir því að líklega hefði bólu-
sóttarfaraldur gengið á árunum
1670-1672.3 Örn færir sannfærandi
rök fyrir því að bólusótt hafi geng-
ið í Flóanum 1672 en ekki í byggð-
um við Faxaflóa.
Jón Steffensen var þeirrar skoð-
unar að gert hafi verið sérstakt dán-
artal á landsvísu vegna Stórubólu
en það hefur ekki fundist. I eftir-
mála greinar Arnar er frá því greint
að fundist hafi skjal í Þjóðskjala-
safninu með nöfnum og aldri
þeirra sem létust í Stórubólu í
Sauðanessókn á Langanesi. Telur
Örn að þessi fundur renni stoðum
undir það álit Jóns að gert hafi ver-
ið sérstakt dánartal í kjölfar Stóru-
bólu. Allavega er skjalið mikilvæg
heimild um afdrif manna á Norð-
ur- og Austurlandi í Stórubólu en
heimildir hefur skort um það efni.
Af hverju er mikilvægt að rann-
saka faraldsfræði Stórubólu? A átt-
unda áratug síðustu aldar tókst að
útrýma bólusóttinni í heiminum,
200 árum eftir að Jenner sýndi fram
á virkni bólusetningar með kúabólu
til að koma í veg fyrir bólusótt. Því
var hætt að bólusetja gegn bólusótt
fyrir 30 árum. Þótt sjúkdómnum
hafi verið útrýmt hefur bólusóttar-
veirunni ekki verið útrýmt því hún
er enn varðveitt á tveim stöðum í
heiminum, í Bandaríkjunum og
Rússlandi,4 þrátt fyrir ákvörðun um
eyðingu hennar í síðasta lagi árið
1999.5 Rökin fyrir því að veiran skuli
enn varðveitt eru meint nauðsyn
rannsókna á lyfjum og bættum
bóluefnum gegn bólusótt vegna
þess að ekki sé hægt að útiloka að
veiran sé í höndum óábyrgra aðila.6
Heimurinn nú á dögum væri í svip-
aðri aðstöðu og íslendingar voru
árið 1707 kæmi til þess að veiran
bærist í menn af slysni eða ásetn-
ingi. Ekkert ónæmi er til hjá fólki
sem er yngra en 30-40 ára. Brytist út
bólusóttarfaraldur gætu afleiðing-
arnar orðið skelfilegar fyrir mann-
kynið. Það er því afar mikilvægt að
nota þær heimildir sem við höfum
til að kanna hegðun bólusóttarfar-
aldurs í næmu samfélagi, líkt og
Örn Ólafsson hefur gert og segir frá
í þessu riti.
Haraldur Briem, sóttvarnalæknir
1 Annales Islandici. Posteriorum Seculorum
1922-2002. Annálar 1400-1800, 1. bindi. Hið
íslenska bókmenntafélag, Reykjavík.
2 Sigurjón Jónsson 1944. Sóttarfar og sjúkdómar
á Islandi 1400-1800. Hið íslenska bókmennta-
félag, Reykjavík. Bls. 40.
3 Jón Steffensen 1975. Menning og meinsemdir.
ísafoldarprentsmiðja. Bls. 275-319.
4 Sóttvarnastofnun Bandaríkja Norður-Amer-
íku (Centers for Disease Control and
Prevention - CDC), Atlanta, Georgíu, og Ríkis-
miðstöð Rússlands í veirurannsóknum og líf-
tækni (Russian State Centre for Research on
Virology and Biotechnology - VECTOR),
Koltsóvó, Nóvósíbírsk.
5 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin. Ákvörðun
WHA49(10).
6 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin. Ákvörðun
WHA59(12).
3