Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 52
Náttúrufræðingurinn Miðlífsöld TRÍAS JÚRA KRÍT 03 03 03 b *o e seint e E a> S e seint e e £ i C0 w w v- If) m CM (N Milljónir ára sem liðnar eru 4. mynd. Tímakvaröi miðlífsaldar í milljónum ára. Hin deild Saurischia kallast Thero- poda. Þar sem þessar skepnur munu allar hafa veitt dýr sér til matar eða lif- að á hræjum, legg ég til að þær verði á íslensku greindar frá graseðlunum sem kjöteðlur. Eins og á myndunum má sjá voru þetta tvífætt dýr, með öfluga afturlimi en mörg, einkum hin stærstu, með rýra framlimi. Fuglsmjaðmar Fuglsmjaðmarnir (Ornithischia), vinstra megin á töflunni, lifðu allir á plöntufæðu. Þeir voru margir með beinkennda bryngadda á baki eða bol, ellegar horn og kraga úr beini á höfði. Frumstæðir dínósárar, sem gengu á tveimur fótum og líktust í útliti smávöxnum kjöteðlum en virðast hafa lifað á gróðri, eru nú taldir standa nærri uppruna fugls- mjaðmanna. Þessi dýr voru uppi frekar snemma á miðlífsöld, í lok trías og byrjun júra. Langbest könnuð þessara dýra, og raunar hið eina þeirra sem heilleg beinagrind 5. mynd. Lesótóeðlan, Lesothosaurus, var með elstu risaeðlum en raunar enginn risi, tæpur rnetri á lengd. Hún lifði seint á tríastímabili, fyrir rúmum 200 milljón árum. Frímerkifrá Lesótó 1992.5 hefur varðveist af, er lesótóeðlan, Lesothosaurus diagnosticus, frá Suð- ur-Afríku, um 80 sm (5. mynd). FUGLAR OG RISAEÐLUR Thomas Henry Huxley, stuðnings- maður og vinur Darwins, og fleiri líffræðingar á síðari hluta 19. aldar þóttust sjá verulegan þróunarskyld- leika með risaeðlum og fuglum. Þessi tilgáta naut lítils fylgis og lá að mestu í gleymsku fram eftir 20. öld- inni. En á síðasta þriðjungi aldar- innar var hugmyndin endurvakin og nýtur nú nær óskoraðrar hylli fræðimanna, enda í samræmi við nýja steingervingafundi og túlkun á þeim. Er nú svo komið, eins og sýnt er á 3. mynd, að í upprunaflokkun er Dinosauria skipt í tvær megin- greinar. Annars vegar eru Aves, fuglar, og hins vegar hinir útdauðu „dínósárar sem ekki eru fuglar", eða á enskri tungu non-avian dinosaurs.5 Hér skulu nefnd nokkur atriði er renna stoðum undir þessa flokkun. Öndun Bein flestra nútímafugla eru frauð- kennd og fyllt loftholum. Stærstu holin tengjast kerfi af loftsekkjum sem eru hluti af öndunarfærum fuglanna og liggja út úr lungunum bæði aftan þeirra og framan. Þegar spendýr eða skriðdýr andar að sér, fer loftið um barka og sífellt fleiri og smærri berkjugreinar og endar í lokuðum lungnablöðrum sem um- luktar eru háræðaneti þar sem loft- skipti öndunar fara fram: Blóðið tekur til sín súrefni úr loftinu en skilar í staðinn koltvíoxíði. Þar sem loftrásirnar enda í þessum blöðrum, blandast innöndunarloftið stöðn- uðu lofti sem í þeim er fyrir. Þetta dregur úr nýtni öndunarfæranna. í lungum fugls nýtist loftið betur. Þar verða loftskiptin ekki í lokuðum blöðrum, heldur við streymi gegn- um aflangar leiðslur, sem eins og lungnablöðrurnar eru umluktar háræðaneti. Lengi vel áttuðu menn sig ekki á öndunartækni fuglanna en nú er ljóst að það tekur tvo andardrætti - tvær inn- og útandanir - að koma öndunarloftinu gegnum lungun. í fyrri innönduninni fer loftið eftir tveimur meginberkjum framhjá lungunum og safnast í aftari loft- sekkina. Þaðan berst loftið svo við útöndun fram í gegnum lungun, þar sem þétt háræðanet umlykur loftrásir og blóðið mettast súrefni. Við síðari innöndun sýgst loftið fram úr lungunum og safnast í fremri loftsekkina. Þaðan fer það svo við útöndun inn í meginberkjur og um þær út úr goggnum. Það sem er síðari innöndun í þess- ari umferð öndunarloftsins er jafn- framt fyrri innöndun í næstu um- ferð: Samtímis því sem loft dregst fram úr lungunum í fremri loft- sekkina dregst nýtt loft að utan inn í þá aftari. Og um leið og loftið úr fyrri umferðinni fer úr fremri loftsekkjunum út úr líkama fuglsins (síðari útöndun hér að framan) fer þetta nýja loft inn í lungun (6. mynd).7 Kannski er best að skýra þetta þannig að í innöndun þenjast bæði fremri og aftari loftsekkirnir út en lungun skreppa saman. I útönd- un dragast loftsekkirnir saman en lungun þenjast út. I beinagrind risaeðla eru sams konar lofthol og í fuglsbeinum, og þótt öndunarkerfi þeirra hafi ekki varðveist, benda nýlegar rannsóknir á lögun og innbyrðis stöðu beinanna til þess að þau hafi tengst loftholum í búk dýranna og öndunarkerfið því verið sömu megingerðar og í fugl- um, í það minnsta í kjöteðlum.8 A 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.