Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 2008, Blaðsíða 14
N áttúrufræðingurinn 2. mynd. Grindarnef í Hvalsárhöfða milli Steingrímsfjarðar og Kollafjarðar eftir að sprengt var. Horft er til norðurs og sér í mynni Steingrímsfjarðar. - The cliff face of Grindarnef on the Hvalsárhöfði peninsula after explosions to make roomfor a road. Look- ing north, the Steingrímsfjördur fjord mouth can be seen in the background. Ljósm./photo: Jón Hallur jóhannsson. árlega fyrir barðinu á dæmalausri grimmd og ránsfíkn refsins, sem hér veður svo uppi að hann rífur eigi aðeins í sig lítilmagna kiðlinga og lömb, eins og í Noregi og annars staðar, heldur ræðst hann meira að segja á hrúta og gamla sauði og tætir sundur, og eru hjarðmenn því seint of vel á verði að gæta hjarða sinna fyrir þessum árásum. Kenna eyjaskeggjar ógæfu þessa kerlingu einni norskri sem vegna vígs einka- sonar síns á íslandi lét flytja á laun til eyjarinnar tvö dýr sitt af hvoru kyni til að hefna með þessu reginill- virki fyrrnefnds óréttar, en henni þótti óvænt um að ná rétti sínum með löglegum hætti. Fjölgaði þeim smátt og smátt svo mjög, að nú er öll eyjan full af vargi. Og ef sönn er saga þessi, hafa víst aldrei verið goldin hærri manngjöld, þar sem þetta skaðsemdar-kvikindi hefur vaðið hér uppi öldum saman."2 Til er þjóðsaga af sama meiði: „Að tófan kom til Islands atvikaðist þannig: Einhver þóttist eiga hefndir að gjalda bóndanum á Oddsstöðum á Melrakkasléttu. Kom sá með tófur tvær, ref og bleyðu, og hleypti þeim á land á Oddsstöðum til að spilla æðarvarpinu. En bóndinn þar var svo fljótur að hlaupa, að hann hljóp uppi bleyðuna hvolpafulla, en sleppti henni, þar sem hann hélt, að sér væri altént hægt í hendi að ná henni, og fór að elta refinn, náði honum og drap hann og ætlaði svo að snúast að bleyðunni og drepa hana. En þá var hún undan komin, svo hann fann hana hvergi. Þannig breiddust tófurnar út."3 A móti þessu mælir að í Grágás, elstu lögbók okkar sem færð var í letur á öndverðri 12. öld, eru mel- rakkar ekki nefndir þegar taldar eru upp þær tegundir sem óheimilt sé að flytja til Islands: „Það varðar og fjörbaugsgarð ef menn ferja við- björn út hingað þeim manni er björn á og stýrimönnum en háset- um 3 marka útlegð og skal kveðja til 9 búa á þingi til fjörbaugs saka en 5 til útlegða. Ef björn verður laus út hér og gjörir hann skaða mönnum eða fé manna, og ábyrgist sá björn að öllu er út hafði svo sem annan alibjörn. Slíkt er og mælt um úlf og ref ef þeir eru farðir [= ferjaðirj út hingað."4 Viðbjörn táknar hér greinilega skógarbjörn (Ursus arc- tos) og refur hlýtur að vera rauðref- ur (Vulpes vulpes) því að tófan gekk ávallt undir heitinu melrakki á þessum tíma. Tófan var greinilega þegar á landinu þegar Grágás var rituð því að þar er tekið fram að melrakkar séu ófriðhelgir og rétt- dræpir hvar sem er. Guðmundur G. Bárðarson fann kjálka, tennur og bein af að minnsta kosti fimm fullorðnum tófum og einum yrðlingi í skeljalagi við Kollafjarðarnes á Ströndum sem talið er vera 2600-2800 ára gamalt.5,6 Þar voru einnig leifar af beinum þriggja fisktegunda og 13 fuglateg- unda, þar á meðal geirfugls (Pingu- inus impennis), og voru mörg þess- ara beina nöguð af refum. Ekki er hægt að útiloka að þarna hafi refir grafið sig niður á þetta gamla jarð- lag á síðari öldum og gert sér greni. Þar sem beinin hafa ekki verið ald- ursgreind eru engar sönnur fyrir hendi um að beinaleifarnar séu frá því fyrir landnámsöld. Því miður virðast þessi bein nú vera glötuð nema þau reynist vera geymd á Dýrafræðisafninu í Kaupmanna- höfn en Herluf Winge, sem þá var varaforstjóri („viceinspector") safnsins, hafði greint beinin til teg- unda. Nýleg rannsókn á erfðabreyti- leika og arfgerðum í hvatberakjarn- sýrum (mtDNA) í tófum sem safnað var allt í kringum norðurheim- skautið sýndi að íslenska tófan skar sig úr að því leyti að 18 (78%) af 23 íslenskum dýrum í rannsókninni voru með arfgerðir sem hvergi fundust annars staðar. Til saman- burðar voru aðeins 10 (25%) af 40 grænlenskum refum með arfgerðir sem ekki fundust annars staðar, 12 (25%) af 48 dýrum frá Kanada voru með arfgerðir sem ekki fundust annars staðar og hið sama átti við um 5 (20%) af 25 dýrum frá Síberíu. í Alaska (13 dýr), Skandinavíu (22 dýr) og Svalbarða (20 dýr) fundust engar arfgerðir sem ekki voru líka 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.