Náttúrufræðingurinn - 2008, Síða 6
Náttúrufræðingurinn
Hreppur Látnir úr bólusótt 1707 Manntalið 1703 Fjöldi aldursgreindra (heildarfjöldi) Dánarhlutfall (95% öryggisbil)
Álftaneshreppur 175 (195?) 569 (582) 31% (27-35%)
Seltjarnarneshreppur 189 601 (604) 31% (28-35%)
Bæjarhreppur nær 100 427 (428) 23% (19-28%)
Stokkseyrarhreppur 140 673(719) 21% (18-24%)
Mosfellssveit 116 322 (322) 36% (31-42%)
Súgandafjarðarhreppur 73 199 (199) 37% (30-44%)
tafla. Dánarhlutfall eftir hreppum . - Death rate by commune.
fæst fyrir Álftaneshrepp (2. tafla).
Reiknaða dánartalan er borin saman
við dánartölu sem gefin er í Set-
bergsannál. Gert er ráð fyrir, með til-
liti til tölfræðiútreikninga, að fjöldi
íbúa og aldursdreifing í Seltjarnar-
neshreppi 1707 hafi verið óbreytt frá
manntalinu 1703.2 Sýna má þó fram
á að takmarkaðar breytingar á fólks-
fjölda eða aldursdreifingu hafi lítil
eða engin áhrif á niðurstöður þeirra
útreikninga sem gerðir eru.c
Aldursbundið dánarhlutfall úr
Álftaneshreppi er því næst notað til
að reikna fjölda dauðsfalla sem
vænta mátti fyrir Flóahreppana tvo,
en reiknað er á sama hátt og fyrir
Seltjarnarneshrepp. Þessar reikn-
uðu dánartölur eru síðan bornar
saman við dánartölur gefnar í Set-
bergsannál fyrir þessa tvo hreppa
(2. tafla). Fyrir Flóahreppana er
notuð aldursdreifing og fólksfjöldi
þeirra úr manntalinu 1703.9
Með þessum útreikningum er
kannað hvort aldursbundið dánar-
hlutfall í bólusóttinni 1707-1709
hafi verið sambærilegt í hreppun-
um fjórum á sunnanverðu landinu.
Ef svo var ekki er kannað hvort
skýra megi mun á dauðsföllum með
því að bólusótt 1670-1672 hafi ekki
borist til allra hreppanna.2
Áður en samanburður á dánartöl-
um fyrir hreppana fjóra er sýndur er
lýsing gefin á þeim talnagögnum
sem notuð eru. Aldursdreifing er
sýnd og kynjahlutfall gefið fyrir
hvem hrepp. Kannað er hvað er ólíkt
með hreppunum og hvaða áhrif það
getur haft á samanburð dánartalna.
MANNTALIÐ 1703 -
ÓVISSA í TÖLUM
Þegar skoðuð er aldursdreifing í
manntalinu 1703 virðist nokkur
„ónákvæmni" í aldurstölum, þar
sem m.a. eru toppar í flestum tuga-
aldurstölum, 20 ára, 30 ára
o.s.frv.9'10'11'1213 Með því að nota
önnur aldursbil má draga úr þessu.
Því eru hér notuð 5 ára aldursbil á 3.
og 4. mynd og við samanburð á ald-
ursdreifingu í hreppunum.
Álftaneshreppur er með hærra
hlutfall barna undir 10 ára aldri og
sker sig því úr miðað við hina
hreppana. I nágrannahreppi Álfta-
neshrepps, Seltjarnarneshreppi, er
fjöldi á bilinu 0 (frá fæðingu) til
4 ára og á bilinu 5 til 9 ára töluvert
lægri en fjöldinn á næstu aldursbil-
Álftaneshreppur
Aldursbil 5 ár, 0-4, 5-9,...
um. í tveimur nágrannahreppum
sem skoðaðir voru, Bæjar- og
Stokkseyrarhreppi í Árnessýslu,
sést sama tilhneiging (4. mynd).
Aldursdreifing í hreppunum
getur bent til að í yngstu aldurshóp-
unum hafi börn verið vantalin, en
þó síst í Álftaneshreppi (3. og 4.
mynd). En með ólíkum hætti var
staðið að talningu eftir hreppum.14
Aðrar skýringar en vantalning geta
átt við, en hafi börn verið vantalin
þarf að meta áhrif þess á þá útreikn-
inga sem sýndir verða.
HVAÐ MÁ LESA ÚR ALDURS-
DREIFINGUM FRÁ 1703?
Á 4. mynd er sýnd aldursdreifing í
þremur hreppum. Samanburður á
aldursdreifingum sýnir að Álftanes-
hreppur er marktækt (p < 0,05) frá-
brugðinn Bæjarhreppi (x2 = 38,5,
d.f. = 19, p = 0,005), Stokkseyrar-
hreppi (x2 = 49,0, d.f. = 19, p < 0,001)
og einnig Seltjamameshreppi (x2 =
33,2, d.f. = 18, p = 0,016). Ekki er
marktækur munur á Bæjar- og
Stokkseyrarhreppi (x2 = 19,3, d.f. =
17, p = 0,31).
Ekki er aðgreind dreifing fyrir
karla og konur sérstaklega þar sem
Seltiarnameshreppur
Aldursbil 5 ár, 0-4, 5-9,,
3. mynd. Dreifing 569 aldursgreindra einstaklinga íÁlftaneshreppi og 601 aldursgreinds
einstaklings í Seltjarnarneshreppi árið 1703. - Age distributions for: the commune of
Álftanes and the commune of Seltjarnarnes, from the 1703 population census. 569 and
601 individuals are age-specified in the communes, respectively.
c Hafi fjölgað í Seltjamameshreppi á tímabilinu 1703-1707 í aldurshópi
undir 20 ára, um t.d. 5%, og sama breyting orðið í Alftaneshreppi eru
niðurstöður útreikninga vegna samanburðar þessara hreppa óbreyttar.
6