Náttúrufræðingurinn - 2008, Qupperneq 26
Náttúrufræðingurinn
Uppruni íslenskra
GRUNNVATNSMARFLÓA
Þær tvær tegundir grunnvatnsmar-
flóa sem hér er rætt um eru merki-
legar fyrir margar sakir. Hér er um
að ræða tvær af fáum innlendum
tegundum á Islandi. Fáar einlendar
tegundir hér á landi hafa áður verið
talin vísbending um útdauða alls
lífs vegna ísaldarjökuls, en þó hafa
fræðimenn haldið því fram að
plöntur og smádýr á landi hafi get-
að lifað af á íslausum svæðum,
a.m.k. síðasta jölulskeið ísaldar
(Weichselian).1819 Okkar tilgáta er
sú að grunnvatnsmarflær sem hér
hafa fundist hafi náð að lifa af
a.m.k. síðasta jölulskeið ísaldar í
lindum sem runnið hafa undir ís-
aldarjöklinum.20 Við byggjum tilgát-
una á nokkrum meginrökum.
Það fyrsta sem styður tilgátu okk-
ar er útbreiðsla grunnvatnsmarflóa
á landsvæðum sem liggja að Norð-
ur-Atlantshafi. Grunnvatnsmarflær
hafa ekki áður fundist jafn norðar-
lega við Norður-Atlantshaf. Þær
finnast hvorki í Skandinavíu né á
Grænlandi og af Evrópulöndum
næst íslandi finnast þær á Suður-
Englandi og írlandi, en næst okkur í
Norður-Ameríku er þær að finna
sunnan við Vötnin miklu.5 Áður
hafa verið settar fram tilgátur um
að grunnvatnsmarflær hafi lifað af
undir jökli í Norður-Ameríku.20-21,22'23
Annað sem styður tilgátu okkar
er að engir aðrir stórkrabbar
(Malacostraca) finnast í ferskvatni á
íslandi. Hér finnast ekki ferskvatns-
leturhumrar, ferskvatnsþanglýs eða
aðrar ferskvatnsmarflær. Ef mögu-
legt væri að ferskvatnsstórkrabbar
hefðu flust til landsins eftir að ísöld
lauk, mætti ætla að það væru ekki
grunnvatnsmarflær sem hér fyndust
heldur aðrar tegundir eins og mar-
flóin Gammarus pulex, sem algeng er
í ferskvatni annars staðar á Norður-
löndum og á Bretlandseyjum.
Það þriðja sem styður tilgátuna er
hversu erfitt grunnvatnsmarflær
eiga með að dreifa sér út fyrir
grunnvatn og þar af leiðandi að ná
fótfestu í grunnvatni fjarri upp-
runastaðnum. Grunnvatnsmarflær
bera, eins og aðrar marflær,
frjóvguð egg og fóstur með sér í
eggjahólfi (marsupium) undir lík-
amanum. Grunnvatnsmarflær í
ferskvatni þola illa seltu og geta því
illa flust milli landa með fljótandi
þangi eða rekaviði. Ekki er vitað til
þess að grunnvatnsmarflær myndi
dvalaregg og því er ólíklegt að þær
mundu þola flutning með fuglum
langar leiðir. Stysti tími sem mælst
hefur á farflugi fugls til Islands var
13 tímar hjá álft (Cygnus cygnus),24
en búast má við því að það taki far-
fugla 10-20 tíma að fljúga hingað.25
Á leiðinni er líklegt að fuglarnir leit-
ist við að hafa þurrar fjaðrir til að
bera ekki aukavigt, auk þess sem
margir þeirra fljúga það hátt að þeir
eru í þó nokkru frosti.
Hvaða aðrar tilgátur gætu komið
til greina? Að okkar áliti eru tvær
aðrar tilgátur mögulegar, en þó telj-
um við báðar ólíklegar. Önnur er
flutningur með fuglum eða með
mönnum. Eins og útskýrt er hér að
ofan þá teljum við flutning með
fuglum ólíklegan. Ekki er hægt að
útiloka að menn geti borið
ferskvatnsmarflær á milli svæða,
t.d. í ílátum. Hins vegar er a.m.k.
önnur þeirra tegunda sem við höf-
um fundið, Crymostygius thingval-
lensis, svo torveld í söfnun að við
höfum aðeins náð í fjögur eintök af
henni þrátt fyrir umtalsvert söfn-
unarátak og mikla reynslu í að afla
slíkra dýra. Því er ólíklegt að teg-
undin berist á milli landsvæða. Hin
tilgátan er að marflærnar hafi þró-
ast út frá sjávarmarflóm sem hafi
einangrast í hellum neðansjávar.
Vegna jarðfræðilegra breytinga hafi
vatnið í hellunum hægt og rólega
orðið ferskara og ferskara og á sama
tíma hafi marflærnar þróast og ein-
Staður Staðsetning
Crymostygius Vatnsvik - Þingvallavatn 64°14,45N 21°03,19V
thingvallensis Herðubreiðarlindir 65°11,55N16°13,55V
Vatnsvik - Þingvallavatn 64°14,45N 21°03,19V
Skútavik - Þingvallavatn 64°08,50N 21°02,50V
Nautavakir 64°00,88N 20°53,02V
Gunnarsholt 63°50,00N 20°13,00V
Keldur 63°49,35N 20°04,56V
Uppspretta nærri Keldum 63°49,61 N 20°05,78V
Rangárbotnar 64°08,39N 19°39,98V
Galtalækur 64°00,48N 19°55,11V
Stóri Galtalækur 64°00,97N 19°57,79V
Lækjarbotnar 63°57,44N 20°15,92V
Mývatn 65°33,35N 16°58,32V
Crangonyx Fljót nærri Grenlæk 63°44,94N 17°56,71V
islandicus Grenlækur 63°43,90N 17°58,14V
Hrosslækur 63°43,56N 17°59,22V
Lind suður af Höfða 63°45,16N 18°04,37V
Hunkubakki 63°45,70N 18°07,48V
Klausturlax 63°46,91N 18°03,01V
Þverá 63°52,42N 17°49,23V
Oddar 64°42,13N 20°53,81V
Hrauná 64°42,34N 20°59,72V
Sandur 65°57,24N 17°32,72V
Klappará 66°16,58N 16°24,37V
Presthólar 66°15,49N 16°24,12V
Jökulsárgljúfur 65°50,23N 16°24,73V
I. tafla. Fundarstaðir gmnnvatnsmarflóa á íslandi. - Sampling locations in lceland.
26
I