Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 34
Náttúrufræðingurinn
Ar - Year
Byggð - Colony
o 1
Minkur - Mlnk
4. mynd. Meðalurpt (a,b,c), meðaltal klakinna (d,e,f) og fleygra unga (g,h,i), skipt eftir árum, varpsvæðum og því hvort minkur heim-
sótti varp (1) eða ekki (0). Ferningur sýnir meðaltal, kassi ± eina staðalskekkju og strik er staðalskekkja x 1,96. - Mean clutch size, mean
number ofhatched chicks and fledged chicks divided by years and whether mink visited colony (1) or not (0). Square indicates mean,
box ± one standard error and line indicates standard error x 1.96.
en það sem skiptir þó sköpum um
það hversu margir ungar komast
upp er hvort minkar sæki í viðkom-
andi varp eða ekki. Áhrif minka á
teistuvarp virtust einkum fólgin í
því að koma í veg fyrir varp ef þeir
voru á svæðinu við upphaf varp-
tíma, að trufla álegu ef þeir komu á
svæðið eftir að fuglar voru almennt
orpnir og að drepa unga í stórum
stíl ef þeir komu fyrst í varp á unga-
tíma. Einnig kom fyrir að fullorðnir
fuglar fyndust minkbitnir í varphol-
um á eggjatíma (2. mynd, 1. tafla).
Fleira en minkur kemur vafalaust
til álita varðandi hnignun teistu-
stofnsins og er fjallað um það í
fyrri grein.1 í því sambandi er
athyglisvert að teistu hefur fækkað í
Flatey á Breiðafirði á síðari árum en
þar er ekki minkur.15
Áhrif minks voru engu að síður
veruleg þar sem heildarungafram-
leiðsla minnkaði um 60% að lág-
marki þar sem minkar voru að verki.
Hér er örugglega um vanmat að
ræða þar sem ekki er tekið tillit til
þeirra para sem ekki reyndu varp,
eins og stundum kom fyrir í teistu-
vörpum þar sem minkur var. Þessi
skerðing verður vegna þess að ein-
stök hreiður eru eyðilögð algerlega
fremur en að aðeins annað eggið eða
unginn sé tekið úr þeim. Þannig var
enginn munur á meðalfjölda fleygra
unga í hreiðrum þar sem ungar
komust á legg í vörpum þar sem
minkar komu og þar sem þeirra varð
ekki vart (Fi,869 = 1,15, p = 0,284).
Gögnin sem aflað var með vökt-
uninni benda þó ekki til fækkunar
þar þótt teista hafi horfið sem varp-
fugl annars staðar á Ströndum á
liðnum áratugum.1 Heildarfjöldinn
hélst allstöðugur, 135-195 pör. Svo
virðist sem nokkur fjölgun hafi
orðið á Kirkjubóli en á móti kemur
fækkun í Kollafjarðarnesi og
Broddanesi þar sem afránið var
mest. Þetta gæti bent til þess að
vörpin þar séu komin að mörkum
þess sem þau þola af afráni eða
öðrum áföllum.
Teistan er langlífur fugl eins og
margir sjófuglar og ekki kemur að
sök þótt varp misfarist við og við.
Væntanlega skiptir máli á hvaða
stigi varps ágangurinn á sér stað.
Séu ungar drepnir seint á ungatíma,
eins og kom fyrir, má vera að
foreldraböndin séu farin að slakna
og það hafi ekki afgerandi áhrif á
varp næsta vor. Sé hins vegar ítrekað
A
34